xx Sumarfrí í Svíþjóðxx

 

Nú í júní skruppum við fjölskyldan í frí til Svíþjóðar. Arnaldur Kári að fara í fyrsta skiptið til útlanda og var spenningurinn mikill. Sér í lagi voru þeir bræður (og allir!) ógurlega spenntir að komast loksins í heimsókn til vina okkar í Svíþjóð, Guðrúnar Láru, Einars Þórs, Maríu, Huga og Baldurs Tuma.

 

Eld-, eldsnemma keyrða amma Kata okkur til Keflavíkur og fiðrildum í maganum fjölgaði ört á meðan við biðum eftir að komast út í vél!

 

 

  1. Eftir útprentuðum leiðbeiningum Guðrúnar Láru komumst við heim á Konsulentvagen eftir hádegi 7. júní.
  2. Það urðu fagnaðarfundir og ég fór næstum að grenja af gleði yfir að sjá þessa stráka leika sér saman í garðinum!

 

Það var margt sem vakti mikla lukku, til dæmis sniglarnir!

 

Svo var æðislega gaman að sprauta út sápukúlum í hundraðavís, klifra, róla og alls konar!
Sjálfri gæti ég vel vanist því að vera nær henni vinkonu minni og geta hist í kaffibolla og spjalli svolítið mikið oftar!!

 

 

 

Þessir tveir voru svo ekkert á því að koma inn í kvöldmat

 

En svo var nú líka notalegt að koma inn og leika og slaka aðeins á

 

Arnaldur Kári alsæll í trjáhúsinu í eplatrénu

 

Svo var farið í könnunarleiðangur í garðinum og fékk lítill snigill að vera með í för

 

Baldur Tumi varð þriggja ára í lok maí. Ég er ákaflega stolt guðmóðir hans!

 

  1. María er aftur á móti orðin 12 ára...hvernig sem það gat nú gerst.
  2. Við komum með Hungurleikana í síðbúinni afmælisgjöf til hennar og það
  3. var gaman að sjá hvað hún var spennt að lesa...ég truflaði hana aðeins til að ná af henni mynd!

 

Guðrún Lára spáir í spilin í fallega garðinum þeirra

 

  1. Blöðrur eru alltaf klassísk skemmtun og munur að geta leikið með þær
  2. utan dyra án þess að þær fjúki út í buskann.

 

 

María lét gauragang og blöðrufjör ekkert trufla sig.

 

Við skruppum öll saman á Junibacken sem er stórskemmtilegt safn/skemmtihús á Djurgarden í Stokkhólmi og er tileinkað sænskum barnabókahöfundum og afkvæmum þeirra. Held að allir verði að líta á Junibacken sem eiga leið um Stokkhólm, stórir og smáir skemmtu sér allir konunglega í þessari ferð!

 

Birtan var kannski ekki alveg sú besta til myndatakna en hér má sjá Arnald Kára
með einum góðum vini, Pétri sem á köttinn Brand sem er ekki síður í uppáhaldi!

 

Það hefði ekki verið ónýtt að komast á Junibacken á hárréttum aldri!!

 

Arnaldur Kári kíkti í heimsókn í Múmínhúsið

 

  1. Svo er farið í lestarvagni í gegnum ævintýraheim Astrid Lindgren...ég hefði alveg getað farið tuttugu sinnum!
  2. Þetta er svo vel gert og fallegt að ég var farin að ímynda mér hvar ég gæti komist í vinnu við að setja upp svona lítil ævintýri!
  3. Þarna sjáið þið náttúrlega hana Ídu komna upp í flaggstöngina og maður ímyndaði sér útsýnið alla leið í Hlynskóga.

 

Ég var alveg farin að útbúa mini-kökur og alls konar í huganum sem væri gaman að búa til á þetta flotta veisluborð í Kattholti!!

 

  1. Svo var haldið áfram í gegnum Matthíasarskóg á slóðir Ronju og um heima annarra ævintýra sem við
  2. á Íslandi þekkjum minna. Svo var endað í ævintýrinu um þá Snúð og Jónatan í Bróður mínum ljónshjarta. Það var svo fallega gert og sagan
  3. rifjaðist öll upp og ég sat og skældi. Hér er útsýnið yfir Nangijala og þarna til vinstri má sjá hann Jónatan sitja og veiða.

 

Húsið hennar Línu vakti mikla lukku

 

Hugi uppi á svölunum

 

Úr húsinu lá rennibraut og þarna komu dúllurnar alveg í bunum rúllandi út í hláturskasti!

 

    Hin frábæru fimm...dettur ekkert annað í hug þegar ég sé þessi yndislegu börn!

 

xx

Þeir bræður skelltu sér á bak hestinum hennar Línu og reyndu líka að lyfta honum eins og Lína en hann vildi nú ekki upp...enda enginn jafn sterkur og Lína!

 

Ég mátti bara til að taka myndir af þessari afmælisveislu sem leit svo voðalega vel út...mig langar í svona!!

 

Við héldum okkar eigin veislu á Junibacken með pönnukökum og fleira góðgæti.

 

 

Eftir ljúfa helgi með þeim konsulentum skruppum við í nokkra daga í sumarhúsi í Lill Kraken, um það bil miðja vegu á milli Uppsala og Stokkhólms. Húsið fundum við í gegnum þessa síðu og í húsinu fór voðalega vel um okkur.

 

Húsið var á voðalega fallegum stað og ekki heyrðist neitt nema fuglasöngurinn

 

  1. Kryddjurtagarður og svo lítið gestahús í baksýn sem einnig er hægt
  2. að fá lánað ef margir eru á ferð

 

xx

 

Ástþór Örn og ilmandi sírenur

 

  1. Ég hafði gripið með mér eitt knippi af ilmandi Dalaliljum en það fyrsta
  2. sem ég sá svo þegar við komum að húsinu voru breiðurnar af þeim út um allt!!

 

 

  1. Arnaldur Kári var ekki alveg viss í fyrstu hvort honum litist neitt á þetta allt saman
  2. en var nú fljótur að taka allt í sátt!

 

 

Það var hægt að sitja úti alls staðar í kringum húsið og svo á veröndinni

 

Þeir bræður eitthvað að bauka úti

 

  1. Það var ekki leiðinlegt að vera á jarðarberjatíma í Svíþjóð og lá við að ég væri eins og Skrámur
  2. þegar hann tapaði sér í sælgætislandi um árið þegar þau blöstu við mér á mörkuðum hér og þar!!
  3. Og minningin um rabarbara- og jarðarberja "kompotið" sem okkur var boðið upp á eitt kvöldið á
  4. Konsulentvagen fær mig til að langa að fara að grenja yfir því að hafa ekki jarðarber hér í massavís
  5. á svolítið skikkanlegra verði en hér!!

 

  1. Það var mjög fjölbreytt fuglalífið í kringum sumarhúsið, til dæmis maríuerla sem
  2. hélt hún ætti heima inni í húsinu og "bankaði" mjög oft á svalahurðina hjá okkur
  3. en þessi svartþröstur var í uppáhaldi hjá mér!

Þeir bræður voru í óskaplega notalegu herbergi og þar var notalegt að hjúfra sig á kvöldin og lesa fyrir svefninn

 

 

Svo var líka notalegt að lita og teikna í rólegheitum

 

xxx xxxxxx

Við skruppum til Stokkhólms og áttum þar frábæran dag

 

xxx

  1. Við lögðum bílnum við lestarstöð rétt við miðbæinn og tókum svo T-banann í miðbæinn...þar með fékk Arnaldur Kári
  2. eina af óskum sínum uppfylltar- að fara í lest!! Stuttu seinna rættist annar draumur...að komast í sporvagn!
  3. Þegar hann var svo í lok dags að telja upp farartækin sem hann hefði prófað að fara í um ævina sagðist hann
  4. þurfa að komast í þyrlu líka - því á ég aftur á móti erfitt með að bjarga!!!

 

  1. Við byrjuðum á sædýrasafni sem vakti mikla lukku. Arnaldur Kári er mjög mikill áhugamaður um
  2. fiska og lífríki vatns og sjávar almennt og var því alveg á heimavelli!

 

Alsæll á fiskasafninu!

 

  1. Svo fórum við á Vasasafnið sem er alveg stórkostleg upplifun,
  2. það er bara ekki hægt að segja neitt annað um það!

 

  1. Eitt af því sem var alveg ákveðið áður en farið var til Svíþjóðar var að ég ætlaði að bjóða þeim
  2. feðgum á kaffihúsið Vetekatten...þangað fórum við að sjálfsögðu og fengum okkur prinsessutertu og fleira.

 

Rölt í bænum

 

 

Í Gamla stan

 

  1. Ástþór Örn er mikill krákuáhugamaður og keypti sér einmitt
  2. þessa kráku sem hann heldur á á myndinni (er persóna úr sænskum sögum af Mömmu Mu).
  3. Það var því tilvalið að mynda þessa félaga við endann á Krákustíg.

 

Þeir bræður fyrir framan konungshöllina

 

 

Arnaldur Kári komst í hoppukastala og skemmti sér stórkostlega!

 

  1. Og hér er hann fyrir miðri mynd á stræti sem kennt er við engan annan
  2. en Jussi Björling!

 

xxx xxxxxx

Frá sumarhúsinu var stutt í lítinn bæ sem heitir Rimbo (mjög vígalegt nafn!) og þar var farið í búðina, hægt að leika á róló og alls konar. Við fórum einnig í heimsókn í bæina Nörrtalje og Vaxholm sem var ekki langt að keyra til heldur.

 

Í Rimbo var þessi geysivinsæli róló sem við heimsóttum nokkrum sinnum

 

Sætur sumarstrákur

 

Þessi sumarstrákur var líka í miklu stuði á róló

 

  1. Mættur til Nörrtalje. Sá bær er voðalega notalegur og mælum við
  2. með heimsókn þangað!

 

Rölt með fram kanalnum sem rennur í gegnum bæinn

 

Andarungar að hvíla sig!

 

 

  1. Ástþór Örn er mikill áhugamaður um víkingatímann og ekki síður norræna goðafæri.
  2. Honum fannst því ekki annað hægt en að stilla sér upp við þennan rúnastein

 

 

Ástþór Örn og Arnaldur Kári dreki...hann keypti sér þessa fallegu drekaskikkju í Nörrtalje

 

Bræður við kirkjuna í bænum

 

Ég var mjög upptekin af rósunum sem uxu í kringum kirkjuna!

 

 

xxxx

Þarna bað Arnaldur Kári í að ég held fyrsta skiptið um að tekin yrði mynd af honum sitjandi uppi á þessum trjábol!

 

  1. Þarna hafði einhver grínari verið á ferðinni og hellt sápu í þennan brunn.
  2. Þetta minnti okkur Sigurð á það þegar við komum eitt sinn á Amagertorv í Kaupmannahöfn
  3. sem var eins og froðudiskó eftir að hellt hafði verið sápu í stóra gosbrunninn þar!!!

 

  1. Þetta er dásamlegt kaffihús...þið ættuð að líta þarna inn þegar þið
  2. lítið til Nörrtalje. Það heitir Tre Praliner og er við göngugötuna í miðbænum.

 

Þeir bræður á kaffihúsinu

 

Við röltum okkur svo upp á útsýnispall

 

Laufin skyggðu nú aðeins á ústýnið en það var fallegt að horfa yfir bæinn engu að síður

 

Drekinn á leiðinni niður í bæ aftur

 

  1. Notaleg stemmning í Nörrtalje...eruð þið ekki öll á leið þangað eftir
  2. þessa myndasyrpu!??!

 

  1. Annar bær sem einnig er vert að heimsækja er Vaxholm. Þar eins og í Nörrtalje eru
  2. draumahús nánast á hverju horni og auðvelt að missa sig í dagdraumum um notalegar stundir í
  3. garðinum með jarðarber í annarri, kanilbulla í hinni og Guðrúnu og fjölskyldu að smakka á nýlagaðri
  4. rabarbarasaft!!!

 

Til dæmis gæti ég alveg hugsað mér að eiga heima í þessu húsi!

 

  1. Ástþór Örn var svo ótrúlega heppinn að finna leikfangabúð sem seldi einmitt slím
  2. eins og hann hafði leitað að!!!!

 

Og Arnaldur Kári var svo heppinn að komast niður að sjó, sjá báta og reyna að koma auga á fiska stökkva!

 

  1. Svo kíktum við inn á kaffihúsið Sílamávinn sem Guðrún og Einar kynntu fyrir mér
  2. í ferð til Vaxholm haustið 2007!

 

Eftir dvölina í sumarhúsinu áttum við aðra langa helgi í Vange hjá Guðrúnu, Einari, Maríu, Huga og Baldri Tuma. Þar var dekrað við okkur og ég farin að íhuga það alvarlega hvort ég ætti að týna flugmiðunum og vegabréfunum!!!!!

 

  1. Hugi og Ástþór Örn bjuggu til heiminn úr Never Ending Story úti í sandkassa.
  2. Það var listavel gert hjá þeim og við spáum þeim miklum frama í leikmyndagerð í framtíðinni.
  3. Í þessari uppfærslu á Never Ending Story voru sniglar í helstu hlutverkum sem voru svo
  4. ósvífnir að láta sig sumir hverfa áður en sýning hófst...leikarar geta jú verið svolítið dyntóttir ekki satt!?!?

 

Þið munið örugglega öll eftir honum Bastian sem sökk ofan í ævintýrið...hér er hann með bókina!

 

  1. Og hér eru þeir félagar búnir að skreyta stofuna en Guðrún Lára hafði fyrr í sumar lofað því að haldið
  2. yrði Eurovisionpartý ef Svíþjóð færi með sigur af hólmi í Baku...sem var raunin og haldin var
  3. frábær veisla!

 

Eftir góðan mat var borin fram þessi kaka...sem ég fyllyrði að sé ein sú besta sem bún hafi verið til nokkurn tímann!

 

  1. María þurfti að sinna mörgum aðdáendum þessa daga sem við vorum hjá þeim og Arnaldur Kári elskaði að
  2. fá hana til að segja Harry Potter-sögur!

 

  1. Á 17. júní fórum við í Gröna Lund sem er skemmtigarður á Djurgarden í Stokkhólmi.
  2. Spáð var mikilli rigningu þennan dag og við vorum í rau á leiðinni á Tekniska Museet þegar
  3. veðurguðirnir ákváðu að skipta um gír og láta draum Ástþórs Arnar og Huga um að komast í
  4. tækið Vilda musen verða að veruleika!! Vilda musen fer einmitt um eitthvað af þessum
  5. ótal krúsídúllum sem sjást á bak við þessa flottu krakka!

 

  1. Ástþór Örn var rosalega brattur í upphafi ferðar og talaði fjálglega um það
  2. hvað draugahúsið væri mikið draumahús í hans huga. Við vildum alls ekki eyðileggja það fyrir
  3. piltinum og hann dreif sig í draugahúsið með Sigurði. Það sést ekki nægilega vel á þessari mynd að
  4. þarna eru þeir í hálfleik komnir út á svalir og Ástþór Örn er algerlega horfinn frá hugmyndinni um draumahúsið...
  5. því draugahúsið reyndist algert martraðahús og hann sleppti því að klára ferðina og kom niður brunastigann af svölunum.

 

 

  1. Að eigin sögn voru tebollarnir meira "hans tebolli" þar sem farið var í hringi á meðan spilaður var
  2. vínarvals undir!!!!

 

Baldri Tuma leist nokkuð vel á tebollana og krakkana sem hringsnérust í þeim!

 

  1. Við heimsóttum hús þeirra Brands og Péturs þar sem hægt var að fá að máta alls
  2. kyns hatta, leggjast í rúmið hans Péturs og prófa alls konar græjur!

 

Myndin aðeins úr fókus en þau svo miklar dúllur að ég gat ekki sleppt því að setja hana hér inn!

 

Þeir dúllar eitthvað að brasa á verkstæðinu hans Péturs

 

Og svo var keyrt langt í huganum á kassabílnum fyrir utan húsið

 

Baldur Tumi gaf allt í botn!

 

María og Baldur Tumi í hringekjunni. Gott að eiga stóra systur þegar farið er í tívolí.

 

  1. Arnaldi Kára fannst líka gott að vita af þeim þarna rétt fyrir aftan sig
  2. þar sem hann geystist áfram á þessum svarta fola!

 

Einar Þór og Guðrún Lára fylgjast með af hliðarlínunni!

 

Stórvinirnir Baldur Tumi og Ástþór Örn slaka á á milli tækja í Gröna Lund

 

  1. Baldur Tumi og Arnaldur Kári fengu sér sitt hvora diskókúluna
  2. í tívolíbúðinni.

 

Þessir stóru strákar (og Angry Birds-bræður!) fengu sér aftur á móti væna candy-floss!

 

  1. Ég var rosa fegin að hvorki ég né nokkurt okkar lét gabba sig í þennan
  2. rússibana!

 

  1. Þarna er aftur á móti á ferðinni einn vagn úr Vilda musen en það tæki hafði verið númer eitt á
  2. listanum hjá Huga og Ástþóri Erni sem fóru nokkrar ferðir!

 

  1. Klessbílarnir klassískir. Arnaldur Kári ætlaði nú með í einni ferðinni en þegar allt var að fara í gang
  2. þurfti að stoppa allt til að hleypa honum út! Það var ágætt að stjórnandi brautarinnar var svona þolinmóða afa-týpan
  3. sem stoppaði grínið þegar þörf var á og hafði fullan skilning á öllu saman!!!

 

Hugi að spá í hlutina og hvert eigi að bruna

 

Krúsidúllur aldarinnar!!!

 

  1. Trjáskrímslið skemmti okkur mjög vel með því að spúa eldi og vatni og
  2. gefa frá sér óhljóð sem allir voru farnir að reyna að leika eftir!

 

Við náðum svo að bjarga alveg deginum fyrir starfsstúlku Ben&Jerry's með einfaldri pöntun fyrir fjóra fullorðna og fimm börn!!!!!!!

 

  1. Þrátt fyrir að hafa látið spæla okkur svolítið í súkkulaðihappdrætti gátum við ekki annað en
  2. brosað alla vega út í annað eftir frábærar stundir í Gröna lund!!!

 

Guðrún Lára og fjölskylda búa rétt fyrir utan Uppsali og þar röltum við nokkrum sinnum í bæinn, meðal annars síðasta daginn í ferðinni.

 

Í miðbænum með dómkirkjuna í baksýn

 

Við fórum og skoðuðum kirkjuna fallegu sem var vígð árið 1435

 

Engin smásmíði, hæsta kirkjubygging á Norðurlöndum, rétt tæplega 120 metra há.

 

Með fallega rósagluggann í baksýn

 

  1. Eftir bæjarferð áttum við ljúfar stundir á síðasta degi frísins með
  2. vinum okkar í Vange. Arnaldi Kára fannst voða gaman að fá að koma með
  3. að sækja Baldur Tuma í leikskólann.

 

Á leiðinni heim þurfti að skoða margt og mikið!

 

Snækóróna í garðinum...ilmurinn...ólýsanlega góður!

 

  1. Og þeir bræður mættir á Arlanda og rifja upp frábæra daga í Svíþjóð um leið og borðaðar voru síðustu
  2. sænsku kanilsnúðarnir í bili!! Takk elsku vinir fyrir dásamlega daga og fullt af ljúfum stundum í minningabankann.
  3. Við vonum svo sannarlega að "destina" muni mæta sem fyrsta aftur eða við hitta ykkur hér í "gamla landinu"!!!
  4. Hej då!!!!!

 

xxxxxxxxxxxx