
Maídagar
- Maí hefur
flogið áfram hér hjá okkur eins og mér heyrist
raunin hjá mörgum öðrum líka (ætli það
hafi verið skorið niður um nokkra daga í maí!!?!?).
- Nokkrar myndir af
hinu og þessu, aðallega þó sætustu bræðrunum
í bænum.

Við höfum verið dugleg
að vera úti í maí...í sólinni þó
að hitinn hafi nú ekkert verið að kæfa okkur!
Það var þó ástæða
til að leggja lambúshettunni og ég skellti í sumarhúfu
á Arnald Kára sem hann var svona
líka ánægður
með.
Þegar Ástþór
Örn er ekki horfinn eitthvert á hjólinu er hann heilmikið
að æfa sig á hjólabretti hét úti.
Hann er sem betur
fer með frekar mikið hérahjarta á því og
fer því sjaldnast langt.


Arnaldi Kára finnst hjólabrettið
alveg ÆÐI!

Hér er brostið á
mikið sápukúluæði...sérstaklega hjá
Arnaldi Kára og mér!
xxx
Hér birtist
stígvélaði kötturinn í öllu sínu veldi
í byrjun maí og hefur verið hér reglulega síðan
á vappinu og skemmt okkur mjög vel.
Sjálf hef
ég fengið að bregða mér í gerfi greifans af
Karabas og tekið á móti kveðjum frá kónginum
og heyrt sögur af töframanninum ógurlega
frá stígvélaða
kettinum!!!
Við Ástþór
Örn héldum smá skákmót um daginn. Ég
komst upp með að beita
heimaskítsmáti
í fyrsta skiptið síðan ég var svona 8 ára
og pabbi leyfði mér að rúlla sér
upp í nokkrum
leikjum. Við Ástþór Örn stefnum að því
að æfa svolítið á næstunni.
xx
xx
En ég verð nú
ansi fljótt "heimaskítsmát" þegar þessi
flotti strákur reynir að fá mig til að spila fjórhent
með sér!
xxx
Við röltum okkur aðeins
út í dag...enda alveg heilar 10 gráður úti.


xxx
Vor, vor, vor...


Birkið að verða tækt
í te
