xxSauðburður í Dalxx

 

  1. Skruppum í sveitina um daginn, náðum örlitlu af sauðburði og að knúsa fullt af yndislega fallegum lömbum!
  2. Hér er brotabrot af sauðburðarstemmningunni!
  3. "má ég halda á lambi?" var alveg örugglega setning ferðarinnar! Maður reynir samt að taka tillit til
  4. mæðranna sem sumar eru afskaplega viðkvæmar fyrir þessum endalausu "barnsránum".

 

Þeir Baugur og Hreinn urðu nú að fá smá athygli líka enda stóðu þeir sig með prýði fyrr í vetur og áttu einhvern
haug af afkvæmum hinum megin í húsunum.

 

Hér er hún Álfmóra (önnur kindin í eigu Sigurðar) með sín fallegu lömb. Sjálf á ég enga kind í
húsunum en vonast eftir því að geta byrjað nýja ættartölu í haust ef allt fer að óskum.

 

Ræktun Ástþórs Arnar gengur hins vegar nokkuð vel og hún Fíóna forystukindin hans bar
þessum gullfallegu lömbum (hrút og gimbur) í ár. Notast var við sæði úr forystuhrútnum Karli Philip frá Sandfellshaga
sem er móarnhosóttur og er gimbrin hennar Fíónu (til vinstri á myndinni ) alls ekki ólík honum.

 

Og Fíóna sjálf stillit sér upp og leyfði mér að taka þessa fínu mynd

 

Hér er Gæfa (mamma hennar Fíónu) með lömb sem einnig eru undan fyrrnefndum Karli Philip

 

 

Hér er hún Borgar-Blíða með sín fallegu lömb

 

Sumar mömmur eru vinsælli en aðrar!!

 

 

Þeir nafnar á vaktinni

 

Það var rólegt framan af

 

En við náðum því þegar Dalla bar tveimur vænum hrútum

 

Það er eins gott að halda góðu jafnvægi...en þessi kind var búin að jarma mikið og kalla og lambið sitt
sem svaraði alltaf standandi uppi á mömmu sinni sem fann það ekkert...snéri sér við og leitaði alltaf með
þetta litla skott á bakinu!

 

Ástþór Örn heilsar upp á hana Míu

 

Arnaldur Kári fékk aðeins að halda á öðru lambinu hennar

 

Þessi litli hrútur er svo fallegur og einstaklega spakur. Spektina (og fínan myndasvip) hefur hann
vafalaust frá föðurnum, honum Baugi (hyrnda hrútnum hér nokkuð fyrir ofan).

 

Hún Kikkolína mamma hans er í það minnsta ekkert sérstaklega spök neitt!

 

Þessi var líka voða skemmtilegur og forvitinn!

 

Var að velta fyrir sér hvort hann ætti að skella sér út í leikinn...

 

var lengi vel að spá í þetta...

 

En æ svo var bara betra að leggja sig aðeins!

 

Úti var annars mikið stuð og stokkið í lofköstum!

 

Þessi svífandi hrútur gæti til að mynda örugglega fengið inni í Bolshoj-ballettinum!!!

 

Hún Mímla Míudóttir gekk sjálf í barndóm og tók nokkra spretti með lömbunum

 

Nóg að gera

 

Það hefði nú alveg mátt vera meiri vorilmur í loftinu en á sunnudeginum snjóaði svolítið og var alhvítt í fjöllum

 

Arnaldur Kári skemmti sér í pollahoppi

 

Og svo mátti leika í snjónum...í maí

 

Trén farin að sýna sig

 

Og þarna á brettunum situr maríuerla! Fuglarnir höfðu nú hljótt um sig í þessu hreti sem gekk yfir

 

Við röltum líka og huguðum að skjólbeltum og plöntum um leið og við leyfðum okkur að hlakka til sumarsins
þegar allt hret verður á bak og burt og allt fær að vaxa og blómstra.