-
Páskafríið
leið ljúflega áfram (allt of hratt þó) í
sveitinni. Farið í fjárhúsin, út að
labba og svo náttúrlega leitað að páskaeggjum
og þau borðuð upp til agna!

-
Við vorum
mjög heppin með veður í sveitinni mestan hluta páskafrísins...svona
þar til fór að blása
-
all hressilega
á páskadagaskvöld! Við vorum því dugleg
að fara út í gönguferðir. Röltum okkur stundum
-
niður
að á. Í einni slíkri gönguferð fékk
ég fyrstu alvöru vorfiðrildin í magann þegar
ég sá að fyrsta tjaldaparið
-
var mætt.

Píla og Trýna
voru að sjálfsögðu drifnar með í þennan
göngutúr líka

Ef það
væri nú alltaf svona gott vatn!
xx
-
Röltum
líka um skjólbeltin sem sum hafa aðeins látið
á sjá eftir ágengan vetur - en nú fer loksins
að vora og víðirinn farinn
-
að undirbúa
sig!

-
Í sandkassanum
var opið þetta fína kaffihús þar sem boðið
var upp á dýrindiskökur,
-
kaffi og kakó!!

-
Á páskadagsmorgun
var svo loksins komið að því að leita að páskaeggjunum!
-
Ástþór
Örn hefði örugglega viljað hefja leikinn við sólarupprás
en lét sig hafa það að bíða
-
alveg til
korter yfir níu!!!

-
Eftir að
hafa farið um allt hús og leist þrautir og gátur
(Ástþór Örn hafði svona temmilega
-
mikinn húmor
fyrir því þegar þeir áttu að ryksuga
yfir eldhúsið til að fá næstu vísbendingu!!)
-
fundust eggin
inni í fataskáp.

Súkkulaðisælir
bræður á páskadagsmorgni

Arnaldur Kári
hafði aldrei séð jafn sætan unga!
-
Afi og amma
í Dal færa þeim bræðrum súkkulaðiegg
og þar sem ekki er nú á
-
súkkulaðið
bætandi fá þeir bræður svona fín pappaegg
frá okkur foreldrunum sem
-
í er
jú smá góðgæti en svo eitthvað smá
dót að leika við. Ansi fín venja þó ég
segi sjálf frá!!
-
Arnaldur Kári
átti ekki orð þegar annar ungi birtist í pappaegginu.

-
Okkur fannst
þessi málsháttur úr súkkulaðiegginu
hans Arnaldar Kára eiga einstaklega vel við í sveitinni
-
þar
sem við reynum að halda kindunum frá trjánum...varð
hugsað til afa Ástþórs!

-
Ég
var eiginlega spenntust fyrir fína gríska páskabrauðinu
sem ég er vön að baka og varð
-
engin breyting
þar á núna!


-
Eftir hádegi
á páskadag var ágætt að hvíla sig
aðeins á súkkulaðinu og skreppa út.
-
Við drifum
því í að grisja aðeins skjólbeltin í
Dal.

-
Ástþór
Örn sér fram á að það verði nóg
að gera í sumar í að höggva
-
niður
við í arininn hjá ömmu í veiðihúsinu!
Svei mér
þá ef vorið var ekki komið...


-
...eða
kannski ekki alveg! Svona var umhorfs að morgni annars dags páska
og þá var nú notalegt
-
að geta
verið inni í rólegheitum, spilað, lesið og alls
konar.