Sveitin í dymbilviku

  1. Apríl genginn í garð...það sem tíminn líður! Veðrið í sveitinni búið að vera með ágætum og við því verið heilmikið úti svona á milli þess sem við páskaföndrum og höfum það notalegt. Formlegt "mæðraeftirlit" er ekki enn hafið í fjárhúsunum enda hefst sauðburður ekki fyrr en undir loka mánaðarins en við förum og gefum sem okkur borgarbörnunum finnst voðalega gaman.

 

  1. Gaman í göngutúr...en svolítið leiðinlegt að sjá hvað þessi vetur, ísinn og snjórinn
  2. lék mörg trén ansi illa.

 

Aðeins eftir af snjónum í sköflum hér og þar, meðal annars þessi við veiðihúsið

 

Píla í hlutverki virðulega öldungsins...enda orðin 12 ára!

 

Hvar er Valli...nei ég meina Trýna?

 

xx

Arnaldur Kári er alltaf jafn spenntur að rölta niður að á í von um að sjá lax um leið og hann ræðir fjálglega um alla laxana og bleikjurnar sem hann ætlar að veiða í sumar!

 

Ekki ónýtur gönguhópur sem ég hafði með mér!

Alltaf jafn gaman að leika sér í pollum!

 

Eftir að gat uppgötvast á stígvélum verður aftur á móti að fara hægt í sakirnar

 

Ástþór Örn er mjög góð hjálparhella í fjárhúsunum...eða ég kannski bara orðin hjálparhella fyrir hann?!

 

 

Arnaldur Kári heilsar upp á hana Míu

 

Svo kólnaði nú svolítið hjá okkur en var nú kyrrt og fallegt veður samt sem áður

 

Ástþór Örn tók þessa mynd af skrautlegu frostmynstri

 

 

  1. Svo var gaman hjá okkur að páskaföndra svolítið
  2. Ástþóri Erni finnst rosalega gaman að fá að búa til og aðallega snyrta dúska
  3. og dúskarnir voru því þemað í ár!

 

 

 

 

Eftir f0ndrið fórum við aftur út í göngutúr

 

Þeir bræður með Elliðatinda í baksýn

 

 

 

 

Kvöldsól af svölunum