Vordagar í mars

 

  1. Búið að vera heldur hljótt hér á bræðrasíðunni. Það útskýrist helst af því að myndavélin okkar lenti í slysi og enn er ekki alveg hægt að ráða til um endanleg örlög hennar. Hér eru náttúrlega "kodak-moment" alveg endalaust og ekki hægt að sjá þau öll fara til spillis því var gamla vélin dregin fram!!!! Hún vill hafa alla voða föla í framan og finnst alger óþarfi að taka myndir í fókus, þannig að þið horfið fram hjá því. Af okkur er bara allt ágætt að frétta svona fyrir utan það að ég og Arnaldur Kári kræktum okkur í magakveisu, ansi fúlt. Í skemmtilegri fréttum er nú að Ástþór Örn spilaði á fyrstu skólatónleikunum sínum í Salnum í vikunni og gekk stórvel! En hér eru nokkrar myndir teknar síðustu daga, gjörið svo vel.

 

Við Arnaldur Kári fengum okkur göngutúr um Laugardalinn í síðustu viku á meðan Ástþór Örn skellti sér í krakkajóga.

 

  1. Við sáum nú enga uglu, en þær eiga víst margar að hafa gert sig heimankomnar þar undan farið.
  2. Þessi spaki þröstur gladdi okkur aftur móti með söng og því að sitja kyrr til að við gætum skoðað hann vel!

 

  1. Arnaldur Kári var aftur á móti fullviss um það að uglurnar væru þarna einhvern staðar...
  2. kannski upp í þessum grenitrjám!

 

  1. Æ, svo var gott að setjast á sitt hvorn steininn og fylgjast með öndunum dotta á bakkanum
  2. eða svamla í tjörninni.

 

  1. Arnaldur Kári tók svo að sér að eyða þessum ummerkjum um vetur, það var því hoppað og stappað
  2. á þessum hraukum sem fljótlega létu undan!

 

  1. Arnaldur Kári hefði viljað vera miklu lengur í dalnum en kominn
  2. var tími til að sækja stóra bróður!

 

  1. Í gær skruppum við í göngutúr í vindasömu vorveðri...ég var eiginlega með hlustaverk þegar við komum heim aftur!
  2. Þessir krókusar þurftu sem betur fer ekki lengur að þola snjóinn og vonandi að nú fái þeir og við að njóta vorsins.

 

  1. Ástþór Örn fór á hlaupahjólinu og þessi stúfur var alveg ægilega glaður
  2. að fá aðeins að prófa!

 

  1. Þessum fannst aftur á móti ekkert rosalega gaman að þurfa að
  2. gefa eftir hlaupahjólið í nokkrar mínútur!!

 

En það gleymdist nú fljótt! Hvað þeir eru sætir þessir herrar mínir :)

 

 

Snjórinn á jólakortamyndinni löngu bráðnaður...hjúkkit!

 

  1. Arnaldur Kári var að reyna að fá Ástþór Örn í það að reisa hús þarna í lundinum og fannst þessi
  2. spíta alveg koma þeim vel af stað!

 

  1. Ég held ég hafi bara aldrei séð jafn sætan hjálparkokk!
  2. Arnaldur Kári þeytist með vöfflur á borðið í sunnudagskaffi.
  3. Og þarna á bakvið má sjá hluta af kryddjurtunum sem komnar eru niður
  4. og farnar að gægjast upp úr pottunum!

 

Og ég held ég hafi bara aldrei séð jafn sætan námshest og þennan!