Í sveitinni

 

  1. Það var vetrarfrí í skólanum hjá Ástþóri Erni á fimmtudag og föstudag. Arnaldur Kári tók sér því bara líka frí á leikskólanum. Á föstudaginn drifum við okkur í sveitina en þangað höfðum við ekki farið síðan í nóvember. Hér er svolítið af myndum, gjörið svo vel!

 

  1. Það var ansi vetrarlegt þegar við komum í sveitina á föstudaginn en þó var ekki næstum eins
  2. mikill snjór og var í upphafi ársins

 

Að sjálfsögðu byrjuðum við á að skreppa í fjárhúsin

 

 

Fórum svo í göngutúr í fallegu veðrinu

 

 

Veiðihús nánast á kafi

 

x

Á bakvið hús var þessi fína brekka sem var gaman að renna sér niður

 

 

 

Alsæll með það að vera loksins kominn í sveitina

 

Já við vorum það öll held ég bara!

 

Þeir bræður renndu sér nokkrar ferðir á snjóþotu

 

Mikið fjör!

 

Píla skemmti sér líka konunglega í brekkunni!

 

Á laugardaginn heilsuðum við upp á hestana

 

 

 

  1. Við notuðum ferðina á flatirnar og snyrtum plöntur á meðan
  2. Arnaldur Kári bjó til hús og alls konar úr snjó!

 

Ástþór Örn skellti sér aðeins á bak Frakk sínum

 

  1. Svo var snjósleðinn ræstur...það gerist ekki oft þar sem snjórinn hefur verið sjaldséður undanfarna
  2. vetur í sveitinni

 

Þeim bræðrum þótti voðalega gaman að fara eina salibunu á sleðanum

 

  1. Arnaldur Kári er mikill spilamaður og fékk ömmu Kötu til að spila Múmín- og hundaspilið oftar en
  2. einu sinni og oftar en tvisvar!

 

  1. Mætt í fjárhúsin til að gefa og Arnaldur Kári vildi endilega fá
  2. mynd af sér með Skúmi

Ástþór Örn fékk svo eina mynd af sér með Baugi

 

Mía er svo spök að hún er ekki síðri fyrirsæta en hrútarnir!

 

Eftir að dágóða stund í fjárhúsunum var leikið svolítið úti

 

 

  1. Nokkuð rigndi aðfararnótt sunnudagsins og snjórinn hafði því aðeins látið undan en ekkert
  2. síður skemmtilegt að leika úti í svolitla stund áður en tími var kominn að halda heim á leið
  3. eftir vel heppnaða sveitahelgi!