xxxxÍ lok janúarxxx

 

Síðustu forvöð að setja inn "allt á kafi í snjó"-myndir frá í vikunni nú þegar janúar er að renna sitt skeið og snjórinn allur að bráðna. Ég og Arnaldur Kári misstum nú eiginlega af öllu þessu fannfergi því hann hefur verið heima síðan á þriðjudag. Vaknaði þá með smá hitavellu og hósta en var þó nokkuð hress. Ég var farin að halda að það yrði nú eitthvað lítið úr þessu hjá honum en á fimmtudaginn varð þessi fjögurra ára snáði sár, sárlasinn í fyrsta skiptið á ævinni held ég svei mér þá. Mér leist nú ekkert á hann og fékk tíma hjá lækninum okkar á föstudaginn til að láta kíkja í hálsinn og svona. Hann reyndist þá kominn með lungnabólgu. Hresstist svolítið eftir að hann fór á lyfin og maður verður að hafa sig allan við að reyna að halda honum í ró! Við verðum því heima eitthvað fram í næstu viku á meðan honum er að batna.

 

xxx

Við Arnaldur Kári höfum reynt að dekra við fuglana í vikunni...eða eiginlega alveg frá því fór að snjóa samt!

 

Auðnutittlingar í fræveislu glöddu hér lítinn lasarus út um gluggann

 

Og hér létu nokkrir snjótittlingar líka sjá sig en ég man nú ekki eftir að hafa séð þá í mörg ár

 

  1. Þessi vinur okkar er svo spakur að maður býst allt eins við því að hann bjóði manni góðan daginn þar sem
  2. maður röltir fram hjá honum yfirleitt á sama stað hér í garðinum. Hann er hér einn af söngglöðum svartþröstum
  3. sem eiga heima í garðinum.

 

  1. Fyrri part vikunnar var hér púslað, teiknað og lesið heilmikið en seinni hlutanum
  2. varði þessi stúfur nú mest undir sæng og lét lesa fyrir sig eða horfði á mynd.

 

Einn seinni part röltum við Ástþór Örn aðeins út í snjóinn

 

Ástþór Örn í "snjósundi"

 

xxx

 

  1. Fallegt að rölta um dalinn í snjónum...það var aðeins erfiðara að komast
  2. um á smábíl aftur móti í þessu færi!

 

xxx

 

 

Bekkurinn orðinn vel bólstraður

 

Svolítið erfitt að róla þegar allt er á kafi

 

En eftir að hafa rutt svolitlu af snjónum gekk það!

 

Kafra í vetrarfríi!

 

Loksins fannst almennilegt grýlukerti sem kom vel út á mynd!!

 

  1. Eftir jólahekl og prjónerí hef ég eitthvað haft lítið af verkefnum í janúar
  2. og hummað fram af mér verkefni sem hafa verið pöntuð, Arnaldur Kári lagði inn
  3. beiðni um vettlinga með mynd af hundi og Ástþór Örn trefil með nótnaskala!
  4. Ég tók því upp teppið góða sem hefur verið í allt of langri pásu og hélt áfram með það.
  5. Það er orðið nógu stórt til að hlýja minnstu dúllunni á heimilinu sem hefur reglulega fengið að
  6. máta það aðeins síðustu daga.

 

xx