Göngutúr, jóga, snjórinn og sitt hvað fleira!
Hér er allt farið að ganga sinn vana gang eftir jólafrí og maður að átta sig á því að janúar sé langt kominn og Þorri genginn í garð! Vonum að þið hafið það öll sem best líka og þökkum kveðjurnar í Gestabókina, alltaf gaman að lesa þær. En hér koma nokkrar myndir.
xxxx
Hér er veturinn enn við völd...enda bara janúar!

Hér hefur vart sést út um gluggana undan farna daga


En svo er líka gaman úti í snjónum


xx
Arnaldur Kári stóð fyrir smá jógakennslu í gær, má til með að sýna ykkur! Hér að ofan má sjá fiðrildið og svaninn


Og hér er það tréð

Í dag drifum við okkur út í göngutúr...sumir tóku reyndar smá spretti inn á milli!



Hittum þessa hrafna sem áttu mikið spjall



Svo notalegt að setjast, fá sér kakó og hvíla sig aðeins


Ég var víst líka með í göngutúrnum!

Hvað er eiginlega hægt að vera sætur!?!

Ástþór Örn er þessa dagana að prófa hina ýmsu svipi þegar teknar eru myndir...mér til mikillar gleði eða þannig!!!!!

Ástþór Örn er ekkert að gefa sér of mikinn tíma í kakóspjall og kominn í einhver sérverkefni áður en vitað er af!


Á leiðinni heim var aðeins stoppað, klifrað og leikið

Ég var þó aðallega að fylgjast með fuglalífinu, hér er auðnutittlingur í felum!

Og einhvern tímann...já þá kemur vorið! Þessir túlipanar minna mig á það þegar ég dáist að þeim.