Janúardagar

 

Gleðilegt ár til ykkar allra, vonandi að þið hafið haft það gott yfir jólin og að nýtt ár verði öllum gott. Við höfðum það stórfínt, búin að lesa heilmikið og spila en þeir bræður fengu nokkrar mjög skemmtilegar bækur og spil í jólagjöf. Þeir bræður voru annars fljótir að koma sér aftur á ról eftir jólafrí og núna er allt komið í sína föstu rútínu í skóla, leikskóla og tómstundum. Sjálf ætlaði ég að byrja árið á heilmiklum útlitsbreytingum á síðu þeirra bræðra en þar sem ég held ég sé búin að gefa mína eigin síðu upp á bátinn í bili tel ég að það sé vænlegra að byrja þetta hér hjá þeim í gömlum takti í stað þess að uppfæra ekki neitt! Sjáum hvað setur síðar!!

 

Fallegur nýársdagur...áður en vetur konungur ákvað að gefa vel í eins og síðustu daga!!

 

Við höfum reynt að vera örlát við smáfuglana svona þegar jarðbönn hafa verið fyrir fuglana síðan í lok nóvember

 

 

 

 

  1. Te og skonsur á nýársdag, mjög notalegt. Þetta hafði verið á dagskrá hjá okkur Ástþóri Erni í smá tíma
  2. þar sem hann hefur verið að lesa ráðgátubækur Enid Blyton í skólalestri þar sem
  3. allir eru voða mikið að fá sér te!

 

Síðasta jólafrísdaginn skruppum við aðeins í bæinn

 

Komum við hjá svöngum fuglum á Tjörninni

 

 

 

  1. Kaldar kinnar...vettlingarnir hans enn í geymslu í vasanum mínum frá því að hann hafði verið að kasta
  2. brauði til fuglanna!

 

  1. Ástþór Örn var duglegur að spila hin og þessi jólalögin í jólafríinu en núna eru þau komin í frí
  2. og önnu lög tekin við!

 

 

  1. Og Arnaldur Kári ákvað að hann væri tónleikagestur og því eins gott
  2. fyrir píanóleikarann að vanda sig! Þið takið kannski eftir að þarna eru
  3. stóra og litla skrímslið á bolnum hans en ég bauð honum í Þjóðleikhúsið
  4. síðasta sunnudag þar sem þau eru komin á svið í Kúlunni. Við skemmtum okkur
  5. bæði konunglega. Arnaldur Kári er mjög mikill aðdáandi bókanna og líkaði sýningin vel...
  6. en ætlaði ekkert heim eftir sýningu því það ætti enn eftir að leika nokkrar bækurnar!

 

Arnaldur Kári settist svo við píanóið og tók á móti óskalögum

 

 

En fannst svo ágætt að fá Ástþór Örn til að spila með sér eitthvað skemmtilegt!

 

 

  1. Og ein í lokin af alsælum Arnaldi Kára með Duplosúkkulaði sem hún Áslaug var
  2. svo sæt að senda okkur fyrir jólin! Við liggjum á því eins og ormar á gulli!