cc
x Bræður í desember ccc
Loksins
nokkrar myndir og fréttir. Hér hefur desember liðið hratt
og margt að gerast þó að við höfum líka
gefið okkur góðan tíma í að hafa það
notalegt yfir kertaljósi, borðað smákökur og spilað.
Ástþór Örn spilaði á píanótónleikum
í síðustu viku og tókst það vel hjá
honum sem og öllum hinum krökkunum sem spiluðu. Þar spiliðu
nemendur kennarans hans Ástþórs Arnar, hennar Ágústu.
Krakkar á öllum aldri og stigum í náminu. Mjög
skemmtilegt! Nú svo er búið að fara á leikskólajólaball,
leika úti í snjónum og svo var fjögurra ára
afmæli Arnaldar Kára 19. desember. Hann tilkynnti mér hér
fyrr í vikunni að nú ætti ég "bara"
tvo stóra stráka en engan lítinn lengur...held að það
sé rétt hjá honum svei mér þá! Takk
fyrir afmæliskveðjurnar, þær voru lesnar fyrir herramanninn!
En hér koma nokkrar
myndir, njótið vel og hafið það öll sem allra
best.

-
Desember hefur verið óskaplega
fallegur enda ágætt að hafa stöðugt veður
og geta bara klætt sig vel.
-
Síðdegissólarlagið
og birtan hefur líka verið ævintýraleg.

Í byrjun desember var haldið
leikskólajólaball. Mjög skemmtilegt og kom öllum í
jólaskap!!

Allir uppteknir af jólasveinagríni
:)

Hér er búið að
baka eitthvað af smákökum...og borða heilmikið af þeim
líka reyndar

-
En við höfum nú
ekki bara setið og borðað smákökur...við Ástþór
Örn höfum verið dugleg að
-
grípa í spil
og held ég að ég hafi fengið staðfestingu á
að ég er óheppnasti ólsen-spilari í heimi!!

Snjórinn hefur glatt stúfana
á heimilinu mjög mikið

-
Ekki hægt að slá
slöku við í heimalestrinum þó að nálgist
jólin.
-
Ástþór
Örn hefur tekið sér Ráðgátubækur
í heimalestri undan farið
-
og ég því
dustað rykið af söguþræði bókanna sem
voru jú lesnar fyrir einhverjum
-
áratugum síðan!!

Piparkökubakstur í undirbúningi

og nokkrum sætabrauðsdrengjum,
lömbum, stjörnum, hestum, refum...síðar!


-
Og úr jólabakstrinum
skellti ég mér í smá afmælisbakstur og
hér var búinn til
-
Barbapabbi að ósk
Arnaldar Kára afmælisbarns! Hann uppgötvaði reyndar
þegar
-
kakan var tilbúin að
líklegast hefði verið best að velja aðra afmælisköku
-
því honum finnst
krem voðalega vont!!! En við hin gátum gert kökunni
góð skil!
-
Afmælisstrákurinn
var þó ekki að láta eitthvað krem trufla sig
þar sem uppáhaldskakan hans,
-
sem er með bláberjum
og hvítu súkkulaði var líka bökuð. Hingað
litu nokkrir í kaffi, amma Kata og afi Ástþór,
Hrabba og Valli og Tinna og Amelía.
-
Fékk playmo fiskibát,
bíl, bók og töfradót sem allt hitti beint í
mark...hér hefur verið mikið "hókus, pókus,
fíla-rókus" síðan!!!!

Þrjár dúllur
að halda upp á fjögurra ára afmæli, Amelía,
Ástþór Örn og Arnaldur Kári

-
Það er enn mjög
vinsælt að taka alla kodda, teppi, púða og fleira og
búa til hús -
-
frændsysktin láta
fara vel um sig í hósiló!

Að morgni afmælisdagsins
19. desember, svolítið hugsi yfir þessu öllu saman

-
Ástþór
Örn svolítið stúrinn...að jafna sig á
smá dramatík fyrr um morguninn!

-
Teknir upp afmælispakkar
frá okkur heimilisfólki! Ástþór Örn
hjálpaði að sjálfsögðu aðeins til.
-
Þarna leyndist margt
fallegt eins og sjóræningabátur sem litla "sjó-
og fiskimanninum" leist voðalega vel á.

Ég ákvað að
prófa nýja myndasvipinn hans Arnaldar Kára!

-
Eftir að Arnaldur Kári
hafði átt góðan dag á leikskólanum komum
við heim og höfðum það notalegt. Fyrsta mál
á dagskrá var þó að baka eina
-
brúnköku með
engu kremi að ósk afmælisbarnsins. Hann tók virkan
þátt í bakstrinum, enda veit Arnaldur Kári fátt
skemmtilegra en að brjóta egg!
-
Hann er hér í
Kermitbol sem hann fékk frá okkur foreldrunum í afmælisgjöf
en sjálfur hafði hann séð hann í búð
og leist svo ægilega vel á
-
hann þannig að það
var tilvalið að lauma honum í afmælispakka!

Afmælisknús frá
stóra bróður



Nei sko...hér tókst
ein!

Svona líka flottur fjögurra
ára afmælisstrákur með vel skreytta kórónu
af leikskólanum

Blásið á kertin
fjögur

Og hér er svo ein af stóra
stráknum sem verður 9 ára eftir akkúrat tvo mánuði!

-
Afmælisbarnið
hafði óskað sér laxabangsa í afmælisgjöf
(hefur reyndar óskað sér
-
laxabangsa
í afmælis- og jólagjafir fram að þessu). Þetta
er greinilega ekki það sem flest börn
-
óska
sér þannig að þetta er ekki alveg til úti
í búð!!! En allt er til einhvers staðar, meira að
segja laxabangsi
-
og hér
voru tekin andköf þegar pakkinn var opnaður um morguninn!!

-
Ég skellti mér
svo á kórtónleika að kvöldi 19. desember þar
sem allir kórhópar Álfhólsskóla sungu
-
og spiluðu. Mjög
vel heppnað og allir stóðu sig frábærlega!