Nóvemberlok og fyrsti í aðventu

Aldeilis hvað tíminn líður hratt. Fyrsti í aðventu í dag og þeir bræður farnir að hlakka heilmikið til jólanna og Arnaldur Kári til afmælisins síns þann 19. desember. Mikil gleði yfir snjónum sem eykur enn á jólastemmningu og ekki spillti fyrir að komast í nýbakaðar smákökur til ömmu Kötu í gær. Hér koma nokkrar myndir, gjörið svo vel!

 

  1. Á fimmtudaginn var frí í leikskólanum og skólanum. Ástþór Örn hvarf nú fljótlega þegar birti
  2. út að leika í snjófölinni sem þá var og við Arnaldur Kári fórum í göngutúr. Arnaldi Kára fannst mjög gaman að skoða
  3. spor, dýra og manna á leiðinni. Hvaða fuglar, kisur og krakkar höfðu verið á undan okkur á ferðinni! En skemmtilegast
  4. fannst honum að skilja eftir sig fín strákaspor.

 

Komum við á honum sívinsæla og skemmtilega gubburóló

 

  1. Þar var rosa stuð eins og venjulega og hringsnúist í gubburólunni sjálfri. Hittum þar vinkonu
  2. Arnaldar Kára af leikskólanum sem gerði ferðina enn skemmtilegri!

 

  1. Svo kom alvöru snjórinn og í gær fórum við í langan göngutúr sem varð líka smá jólaundirnbúningsferð.
  2. Það var því ástæða til að taka kakó á brúsa og svolítið af nýgerðu konfekti með!
  3. Sælir í snjónum að bíða eftir kakói og konfektmola!
  4. Þó að enn sé nú svolítið í jólin tók ég mig til og prófaði að búa til smá döðlukonfekt sem smakkast svona líka vel!

 

 

  1. Mér finnst alveg ótrúlegt að þessi kútur sé að veða níu ára eftir rétt um tvo mánuði!

 

  1. Auðnutittlingar svo fallegir með rauða dúskinn á enninu
  2. Eftir smá jólastúss var rölt heim í gegnum dalinn aftur
  3. Englar
  4. Þessi engill vildi aðeins fá að hvíla sig enda hafði hann verið svaka duglegur í löngum göngutúr
  5. en hafði líka farið í íþróttaskólann um morguninn!

 

  1. Kátur þröstur!

 

  1. Við höfum reynt að dekra svolítið við fuglana í snjónum og leiðist ekki þegar svarþrestirnir fá sér sæti á svölunum hjá okkur
  2. og þakka fyrir sig með söng!
  3. Í dag skárum við út og steiktum laufabrauð. Við pabbi vorum að rifja upp að við kynntumst þessum sið
  4. fyrst á laufabrauðsdegi í Breiðholtsskóla árið 1981 og því akkúrat 30 ár síðn þessi skemmtilegi siður
  5. komst á.
  6. Ástþóri Erni fannst þetta ekki ganga alveg nógu vel hjá sér en fékk smá leiðsögn og skar út nokkrar
  7. ljómandi fínar!
  8. Eftir útskurðinn var notalegt að fá sér heitt súkkulaði og smá jólaköku,
  9. láta svo afa lesa stígvélaða köttinn sem hefur alveg slegið í gegn hjá Arnaldi Kára.
  10. Sagan er úr gamalli Grimmsævintýrabók sem ég fékk, samkvæmt áletrun fremst í henni
  11. í jólagjöf árið 1980 og fyrst mátti nú bara lesa um Úlfinn og kiðlingana sjö en núna
  12. er stígvélaði kötturinn aðalmálið og Arnaldur Kári bíður spenntur eftir að komast í bíó
  13. að sjá myndina um þennan klára kött! Ég veit ekki alveg hvort hann mun sætta sig við að myndin
  14. verði frábrugðin sögunni í bókinni góðu.
  15. Kveikt á spádómakertinu í dag. Við Ástþór Örn höfðum háleitar hugmyndir um
  16. mikinn greniaðvenutkrans en þegar til kom langaði okkur nú bara að halda okkur við
  17. okkar hefð! Í fyrra var mikið um glit og fínerí en í ár ákváðum við að hafa sveppi, fugla og ber.
  18. Okkur gekk ágætlega að finna berin og sveppina en úff, ég er alveg búin að reita hár mitt
  19. yfir því að HVERGI er hægt að fá eðlilega fugla til skreytinga!
  20. Við erum mjög ánægð með þetta, eitraðir sveppir, rauð falleg ber og rauður fugl (sem sagt ekki eðlilegur!!)

 

  1. Hafið það öll sem best, eigið vonandi góða aðventu fram undan með nóg af heitu kakói, jólalögum, smákökum og öllu hinu jóla...!