Nóvemberhelgi í sveitinni

  1. Jæja, kominn tími á uppfærslu síðunnar. Vil nú byrja á að þakka fyrir kveðjurnar í gestabókina, það þarf ekki meira en sæta kveðju til að gleðja síðuhaldara!!
  2. Nóvember hefur liðið heldur betur hratt og ekki langt í að hægt verði að fara að skreyta aðeins og huga að jólum...já og fjögurra ára afmæli. En það er enn eitthvað í það þó!
  3. Skruppum í sveitina um helgina, hér koma nokkrar myndir.

 

Á laugardaginn var svolítill vindur en þegar okkur heyrðist vindurinn aðeins vera að hvíla sig drifum við okkur út að labba

 

  1. Byrjuðum á að kíkja í fjárhúsin. Þangað eru nokkrar kindur mættar og einnig hann Skúmur sem skilaði sér sjálfur heim um
  2. daginn ásamt Baugi félaga sínum. Við söknum hans Töggs mikið, forystuhrútsins okkar en því miður eru allar líkur
  3. á því að hann hafi farið á vit feðra sinna í sumar því hann skilaði sér ekki í haust og hefur ekki fundist.

 

Brauðmoli vel þeginn!

 

Ég fékk eina mynd af mér með þessum göngugörpum

 

Sem stormuðu svo saman niður veg á leið á næsta áfangastað

 

  1. Sem var hjá þessum félögum okkar. Arnaldur Kári var mikið búinn að sakna Dufgusar hestsins síns
  2. og var hann því glaður að hitta hann og færa honum nokkra hestamola.

 

Og Frakkur alltaf hress og ég held að hann langi alltaf með manni heim eða hvert sem maður er að fara

 

 

Hnota, Neisti og félagar

 

Merkur og Sigurður Ágúst

 

Svo var rölt áfram

 

  1. Þegar heim var komið drefi Ástþór Örn sig í að vinna stærðfræði og hluti af heimavinnunni var að teikna upp
  2. og mæla hitt og þetta...verkfræðingurinn fór á flug í því verkefni og skildi ekkert í að burðarþolsmælingar væru ekki líka komnar inn í námsefnið (...ok nú er ég að ýkja)!!

 

Píla var bara svoooo þreytt eftir göngutúrinn - svona mynd af Pílu tilheyrir orðið sveitaalbúmunum

 

Ekki hægt að sleppa því að setja inn enn eina fína af þessum sæta strák

 

Ég dreif Trýnu með mér út í aðeins meiri göngu enda veðrið skaplegt...Píla þóttist steinsofandi og fékk því frí enda komin á eftirlaunaaldur!

 

Alls konar grænt og grátt sem endalaust er hægt að mynda

 

  1. Trýna hvíldi sig aðeins þarna við steinana...ég er ansi þreytt á þessum þremur doppum á myndinni
  2. til vinstri. Þetta er eitthvað inni á linsunni sem er ansi leiðinlegt því þetta skemmir mikið af myndum.
  3. Ég þarf eitthvað að láta kíkja á þetta...nú eða fara að laga myndirnar í photoshop!

 

  1. Mmm...þegar ég kom inn úr göngunni var kominn kaffitími.
  2. Döðlukaka með súkkulaði og valhnetum með avocado/banana-súkkulaðimauki...óendanlega gott!

 

Ástþór Örn réð sér ekki af kæti yfir vel unninni heimavinnu og kökunni!!!!

 

  1. Tunglið var næstum fullt á laugardagskvöldið og ef það hefði ekki verið hífandi rok hefði verið tilvalið að
  2. fara út að labba í tunglsljósinu...já kannski með vasaljós því maður sér vart handa sinna skil í kvöldmyrkrinu í sveitinni
  3. en á móti verður þar alveg yndislega stjörnubjart þegar skyggni er gott.

 

Arnaldur Kári er örlátur á kossana sína og vildi endilega að myndavélin tæki mynd af einum

 

  1. Í morgun var svo farið í fjárhúsin, skafið og mokað til að undirbúa það fyrir íbúa þess
  2. sem nú fara að mæta heim

 

Svo átti eftir að taka undan nokkrum hrossum og það var næsta verk á dagskrá

 

 

Dúfan Dúa á vappi en við fylltum vel á matarbyrgðirnar hjá henni enda orðið minna hjá henni sjálfsagt að fá upp á eigin spýtur

 

Það var fallegasta veður í dag þegar við fórum heim...einmitt þannig að okkur langaði ekkert heim!

 

 

  1. Þessi fallegi Amaryllis tók á móti okkur og minnti svolítið á að ekki er
  2. allt of langt í fyrsta sunnudag í aðventu!

 

 

Hafið það öll sem best