Hrekkjavaka

 

Héldum okkar árlegu hrekkjavöku í gær, alltaf gaman að hafa smá ástæðu til að föndra og baka eitthvað öðruvísi! Ástþóri Erni finnst þetta orðið einn skemmtilegasti dagur ársins og Arnaldur Kári vildi endilga halda aðra hrekkjavöku í dag þannig að honum hefur litist ágætlega á þetta líka!! Þetta var nú allt með hefðbundnu sniði og hér koma nokkrar myndir.

 

Leðurblökur farnar að flögra um og Ástþór Örn að byrja að undirbúa graskersútskurð

 

Ástþóri Erni finnst næstum jafn gaman að skafa innan úr þeim og að skera út!

 

En ágætt að fá smá aðstoð með að ná mesta "drullinu" úr

 

  1. Ég aðstoðaði Arnald Kára við útskurðinn...eða var það öfugt! Hann vildi hafa sitt brosandi með tennur...
  2. þannig að þessi hefðbundi "Jack-o'-lantern" leit dagsins ljós!

 

Og hér eru þau tilbúin...og einhver kynjavera þarna á bak við

 

Kaka í anda skrímslisins úr Frankenstein

 

Þessi hressi draugur mætti í Frankensteinköku, marengue-drauga og fleira!

 

Þetta rann allt ljúflega niður með "drekablóði"

 

Ég var svolítið sár þegar einn gestanna benti mér á að gríman líktist mér svolítið...

 

Þarna flaug svo nornin úr vestri sem klippt var út bara fyrir Arnald Kára!

 

 

Gleðilega hrekkjavöku!