xxHaustdagar í sveitinnixx

 

 

Skruppum í sveitina um helgina. Þrátt fyrir að haustlægð vildi endilega fá að vera með okkur höfðum við það bara fínt. Vorum heilmikið úti, inni að spila og svo rákum við kindur og alls konar! Fullt af myndum, gjörið svo vel.

 

Það var orðið ansi haustlegt í sveitinni eins og búast má við enda fyrsti vetrardagur á laugardaginn

 

Svolítið kalt og blautt í sveitinni á fyrsta vetrardegi

 

Ekki var nú mikið að gera í fjárhúsunum...en þau munu nú fyllast af lífi á næstunni þegar kindurnar verða teknar í hús

 

  1. Ég og Arnaldur Kári í göngutúr og voru holur sem eiga að fara plöntur í með tíð og tíma nánast
  2. stútfullar af vatni enda mikið rignt undan farið í sveitinni

 

Litum svo á Skugga og Létti

 

  1. Þeir voru glaðir að sjá okkur...bara mun auðveldara að ná Létti á svona knúsimynd en Skugga sem er
    fljótur að láta sig hverfa ef honum sýnist stefna í eitthvað slíkt!!!

 

 

Þrastarhópur í leit að einhverju góðgæti...kannski ánamöðkum

 

Birki í haustlitum

 

Og lítið Reynitré sem var sett niður í sumar í fallegum haustlitum

 

Þröstur á vaktinni stillir sér upp

 

Þessi var að hrekkja þrestina og rak þá saman í skýi þarna um allt

 

Ljónslappi í haustlitum...sem slapp við að lenda í teblöndu hjá mér

 

Píla og Trýna voru drifnar í nokkra göngutúra en fengu að hvíla sig líka inn á milli!

 

Kátar dúllur

 

 

 

Sigurður tók nokkrar myndir...þetta var sú skásta af okkur!

 

 

Pollar=gaman!

 

 

 

 

 

xxxx

Notalegt að koma inn og fá sér smá hressingu áður en farið var á Hjarðarfell í kindastúss. Ég held þið getið ekki ímyndað ykkur hvað var hægt að segja marga brandara í kringum eina kexköku en Arnaldi Kára fannst hann alveg óskaplega sniðugur til dæmis að hafa kex fyrir auga á nokkrum myndum!

 

Kindurnar okkar eru enn úti með kindunum af Hjarðarfelli þarna á flötunum okkar og þeirra enda haustið verið ágætt.

 

Á meðan fólkið fór allt að reka heim í hús fé til skoðunar og flokkunar vorum við Arnaldur Kári á vaktinni svo að hóparnir
snéru ekki á okkur. Arnaldi Kára fannst þessi fyrirsát mjög spennandi og hélt að hann væri í feluleik við þær...enda er það
miklu meira spennandi en að eiga bara að sitja og bíða! Ég notaði líka tækifærið og tók fullt af fínum haustmyndum af þessum litla stúfi mínum!

 

Og svo birtust þær loksins og við létum fara lítið fyrir okkur til að sundra þeim nú ekki í allar áttir!

 

Og engin náði að leika á okkur og allar voru reknar heim í hús

 

  1. Hér eru líflömb haustins úr Dal...þarna má sjá Evudótturina Lenu lengst til hægri, Mímlu Míudóttur næst henni þessi svarta og hvíta en bara örlítið af
  2. Fíónudótturinni náðist á myndina þarna lengst til vinstri! Ástþór Örn og Andri ansi búmannslegir þarna á bak við.

 

Lena Liljudóttir-Evudóttir leyfir þeim bræðrum að skoða sig

 

 

Ástþór Örn kíkti aðeins á nautin en Arnaldi Kára var ekkert um það gefið!

 

Þegar heim var komið skelltum við í eina súkkulaðiköku og fengum okkur svo kaffi, spiluðum yatsi og höfðum það notalegt!

 

  1. Ég dreif mig svo aðeins ásamt Pílu og Trýnu út í göngutúr í kvöldsólinni seinni partinn.
  2. Byrjaði aðeins á að kíkja á þessa frábæru félaga okkar með nokkra mola í vasanum vöktu mikla gleði í hópnum!

 

Frakkur, Dufgus, Neisti, Hnota...já og svolítið af Krummaístru!

 

Píla og Trýna "á vegum úti"...

 

Séð heim í kvöldsólinni

 

Og svo ein úr morgunsólinni síðasta daginn okkar í sveitinni

 

  1. Þessi lætur enn fara vel um sig í sveitinni og er búin að leggja undir sig eitt útihúsanna.
  2. Eitthvað er farið að harðna í ári hjá henni því hún var farinn að éta af korni sem ég hafði sett hjá henni fyrir nokkru
  3. og ég bætti því vel á það og vona að hún láti fara vel um sig í húsinu áfram.

 

Gæsahópur æfir sig fyrir langflug

 

Ágætt að vindur myndast ekki vel...en það blés ansi hressilega þegar við yfirgáfum sveitina í þetta skiptið.