xxxxxxxxxxOktóberdagar xx

 

Kominn október og allt komið á fulla ferð í haustrútínu hjá okkur. Við höfum reynt að vera dugleg að fara út í fallegu haustlitina svona á milli haustlægða!
Þessir fyrstu októberdagar hafa verið mjög skemmtilegir og verið fljótir að líða...það verða komin jól áður en maður veit af. Drifum okkur öll ásamt ömmu Kötu og sáum Galdrakarlinn í Oz um helgina og skemmtum okkur öll konunglega...og dreymir okkur öll um að eignast lítinn "Tótó" og Arnald Kára dreymir um að komast til Kansas og Oz :)

 

xxx

Arnaldur Kári að perla...í bol sem við föndruðum fyrir síðasta föstudag sem var haldinn bleikur á leikskólanum eins og víða annars staðar.
Arnaldur Kári hafði svo valið sér hábleikar Barbapabbasokkabuxur sem hentuðu mjög vel og hann ægilega flottur!
Ástþór Örn vildi endilega fá að búa eitthvað til sjálfur úr því að saumavélin var komin í gang og saumaði hann sér bleikt buff til að
hafa um hálsinn...náðist því miður ekki á mynd.

 

Á sunnudagsmorguninn mætti Harry Potter í heimsókn

 

Og Ron vinur hans sat og vann í stærðfræði á meðan...Ástþóri Erni finnst annars
ekkert fyndið þegar honum er úthlutað hlutverki Rons því hann vill sjálfur vera í hlutverki Harry Potters!

 

Við drifum okkur svo mæðginin í göngu/hjólatúr í fallegu haustveðri

 

 

 

Haust, haust haust...

 

Hér var vestan-nornin úr Oz mætt!

 

Og ég man nú ekki hvaða norn þetta var...en þær hlupu og hjóluðu undan og á eftir hvor annarri í lundinum!

 

Svoooo gaman

 

Svo mikill krúsilíus

 

xx

Klifurkettir

 

Hreindýr sem við rákumst á!

 

Koparreynirinn svo fallegur

 

Þegar við komum heim hrærðu þeir bræður í pönnukökur og tóku hlutverk sitt í eldhúsinu mjög alvarlega

 

 

Pönnukökumeistarar!

 

Svo var loksins sest, drukkuð smá kakó og borðaðar pönnsur

 

Ástþór Örn að æfa sig á píanóið en hann byrjaði í píanótímum í tónlistarskólanum í haust.
Honum líkar mjög vel og okkur finnst hann náttúrlega algjör snillingur! Arnaldur Kári er líka
rosa duglegur að æfa sig og tekur mikinn þátt í þessu öllu saman. Það er mjög dúlló að oft þegar
verið er að hlusta á Ástþór Örn æfa sig heyrist allt í einu að spilað á rafmagnsorgelið inni hjá þeim bræðrum
og þar er þá Arnaldur Kári farinn að æfa líka.

 

Eitt laganna sem æft var fjórhent...ágætt að Sigurður man eitthvað úr sínum píanótímum frá því í
gamla daga.