Haustferð til Akureyrar

    Skelltum okkur norður yfir eina helgi í september. Tíminn var fljótur að líða og við getum vonandi bara farið aftur áður en allt of langt um líður til að hitta þá sem við náðum ekki að líta á í þetta skiptið. Ferðin mjög vel heppnuð og þeir bræður skemmtu sér stórvel og var Arnaldur Kári farinn að velta fyrir sér hvaða leikskólar væru álitlegastir bænum!! Tók eitthvað af myndum, gjörið svo vel.

     

Í Norðurárdalnum vorum við stopp í smá stund þar sem verið var að reka kindur yfir þjóðveginn.
Hér er örlítið brot af safninu!

     

    Flestar fóru þarna yfir á vaðinu

     

    xxx

Aðrar treystu sér ekki þar yfir og komu í loftköstum yfir brúna fram hjá bílnum...við vorum farin að halda að þetta væri fleygt
afbrigði af íslensku sauðkindinni!!

 

    Þegar við vorum um það vil hálfnum stoppuðum við og fengum okkur nesti

     

     

    Og þeir bræður mættir í miðbæ Akureyrar í notalegri haustblíðunni

     

    Arnaldur Kári lentur í hálfgerðum vandræðum með ísinn sinn!

     

Röltum svo aðeins í veðurblíðunni um lystigarðinn...eða Arnaldur Kári rölti ekki mikið, hann hefur
örugglega náð eins og einu skemmtiskokki í það minnsta!

     

    Ég hljóp eitthvað minna en tók myndir af blómum og jú þeim bræðrum! Hér er rós sem heitir Mjallhvít...segir sig kannski sjálft?!

     

Þessi rós heitir límrós...sem Ástþóri Erni fannst mjög sérstakt nafn á rós. Ég mátti til að gabba hann aðeins og
sagði að þetta væri líka aðaluppistaðan í lími eins og tonnataki...það þótti honum mjög merkilegt! Ég leiðrétti það nú
svo en eftir stóð þó spurningin hvers vegna þetta heitir límrós!

     

    ...og svo var hlaupið meira

     

    og fundin fleiri blóm...

     

Mér finnst þetta alltaf eitt fallegasta tréð í garðinum...en nú veit ég bara ekki hvað það heitir.
Kannski að þetta sé beyki...eða kannski álmur...nú eða eitthvað allt annað?

 

     

Hún sést kannski ekki vel en þarna á milli þeirra bræðra er eikarafbrigði, þær eru nú sjaldséðar á
Íslandi og þar sem þær lifa vaxa þær hææææægt.

     

    Haust

     

    Rifsberjauppskera brást alveg í garðinum okkar en þarna voru þau nokkur en varla tilbúin

     

Mér þykja reynitré og runnar ein fallegustu trén á haustin ekki síst vegna fallegu berjanna.
Hér er Kasmírreynir.

     

    Þetta myndi ég halda að væri reyniafbrigði líka

     

    Hvað ætli þetta fallega blóm heiti?

     

    Arnaldur Kári og Ástþór Örn hvíla lúin undir brjóstmynd af Matthíasi

     

    Sigurður í skugga reynitrés...en þetta er svolítið eins og hann sé með eitthvað svona tribal húðflúr!!

     

    Svo sætir þessir bræður

     

Arnaldur Kári fann litla trjágrein á stígnum, settist og hóf að rita endurminningar að eigin sögn!!
Okkur grunar að sú hugmynd sé fengin að láni frá Múmínpabba

     

    Alveg hægt að gleyma sér í blóma- trjámyndatökum á meðan aðrir skrifa endurminningar eða hlaupa!

     

Á leiðinni um bæinn rákumst við á þessa götu og vorum sammála um að hún hlyti að vera draumagata
Arnaldar Kára

 

Það er nú ekki hægt að heimsækja ömmu og afa án þess að kíkja með þeim
í jólahúsið.

 

 

Hittum þennan kött í garðinum við jólahúsið en fannst hann nú kannski aðeins of góðlegur til að
geta verið sjálfur jólakötturinn!