Sveitahelgi
Drifum okkur í
sveitina um helgina, þar sem farið var á fjall að sækja
kindur og tínd nokkur bláber!
Við mægðin
skruppum í smá berjamó í upphafi helgar. Haustvindarnir
orðnir svolítið kaldir
og því
gott að vera með nýju húfuna og svo prjónaði
ég þessa vettlinga á hann og bætti þar aðeins
við
í vettlingabankann
sem virðist aldrei vera of fullur!
Ástþór
Örn tíndi svolítið af berjum handa ömmu sinni en
þegar ég sá að berin rötuðu flest öll
upp í hann
en ekki í
dallinn hjálpaði ég nú svolíti til og við
náðum í alla vega nokkrar sultukrukkur!

Arnaldur Kári
var alsæll að klífa "fjöll" á meðan
við tíndum

Álfur í
berjamó!?

Fjallgöngugarpar!

Sælir í
berjamó en svolítið erfitt að brosa í myndavélina
með sólina í augunum











Nokkrar á
leið heim eftir gott sumar á fjallinu

Við rekum saman
með Hjarðarfellsbúinu og er öllu fé safnað
saman í fjárhúsunum þar

Ástþór
Örn fékk að ríða smáspöl í
restina og Arnaldur Kári fékk aðiens að máta
hann Dufgus
Í sveitinni
-

Áður en var dregið
í dilka drifu knapar sig heim með hrossin sem voru orðin þreytt
eftir reksturinn í fjallinu

Horft heim í Dal

Á meðan
röltum við Arnaldur Kári um á Hjarðarfelli, heilsuðum
upp á dýrin og reyndum að sjá
hvort við
þekktum ekki einhverjar í fjársafninu!



Mér finnst
þetta svo sæt mynd sem ég náði af honum þessum
sæta sveitastrák sem var svo sæll með þetta allt
saman!

Arnaldur
Kári vildi helst ekki fara heim þegar tími var kominn og
stakk upp á því á sunnudagsmorgninum að við
drifum
okkur aftur í fjárhúsin!

Og þarna þekktum
við nú alla vega eina, hana Fíónu sem er þarna
sú hyrnda upp við vegginn

Og gleðin
var mjög mikil hjá Arnaldi Kára (já og okkur öllum
reyndar) þegar við hittum hana Míu
aftur eftir
sumar á fjalli!
Arnaldur Kári
og Mía mundu vel hvort eftir öðru og bauð hann hana
hjartanlega
velkomna heim!

Arnaldur Kári og Púki
fylgjast vel með öllu

Þessi
heldur tætingslegi hrútur var að koma fram aftur eftir vetrargöngu
á fjalli og gæti sjálfsagt
sagt ýmsar
sögur...kannski af tröllskessum og alls konar!

Ástþór
Örn stóð sig vel í að kljást við marga
þrjóskupúka í fjárhópnum!


Í dag
ráðast svo örlög þessa hóps. Það
voru nokkur ansi væn lömb sem komu af fjalli sem verður gaman
að
fylgjast með
í húsunum í vetur.
Rekstrardagur
að kvöldi kominn og það var notalegt að koma heim í
Dal í hlýjuna
til ömmu
Kötu.

Í helgarlok heilsuðum
við upp á hestana, gáfum þeim eplabita og svolítið
klór.

Arnaldur Kári fékk
aðeins að setjast á bak á Frakki
Við skelltum okkur svo
í berjamó

Berjasprettan
hefur nú oft verið betri og berin ansi misstór eftir breiðum.
Þó nokkuð af
aðalbláberjum
en þau frekar smá.


Arnaldur Kári að
hvíla sig í mjúkum mosanum og lynginu

Aldrei að vita nema hér
verði kannski bökuð bláberjakaka með hvítu
súkkulaði einhvern næstu daga!
Hafið það
öll sem best!