Septemberlauf

xxxxxxxxxxxxxxxx

 

    Jæja, þá kem ég inn myndum í upphafi mánaðar! Aðeins farið að hausta og til að hvíla okkur aðeins á heljarinnar tiltekt í dag skruppum við í smá göngu í Elliðaárdalnum. Smellti af nokkrum myndum.

 

Við erum yfirleitt á ferðinni í dalnum þegar er farið að hausta enn meir eða um vetur þannig að það var
tilbreyting að vera á ferðinni þarna snemma hausts

 

Ástþór Örn tók með sér teikniblokk og teiknaði tré og annað áhugavert

 

Ég leit eftir haustlitum og þeim björguðu nokkur birkitré

 

 

 

Þessi tvö tré vaxið aldeilis!!

 

Þessi kútur er mjög svo vanafastur og vill til að mynda helst alltaf fara út með húfu og í flíspeysu þó að veðrið sé svaka gott...
ég get leitað að mest klædda barninu á leikskólalóðinni þegar ég kem að sækja hann!
Hann vill nú ekkert mikið vera að fara í ný föt en í vikunni blöskraði mér einu sinni þegar ég kom að sækja hann og
það rann upp fyrir mér að húfan sem barnið væri með hefði getað verið notuð í leiksýningu um Oliver Twist!
Ég dreif því í að prjóna húfu á hann sem var vígð í dag þar sem tekið var tillit til óska Arnaldar Kára um að það yrði á henni dúskur
...tók reyndar smá tíma að sannfæra hann um að húfan væri komin til að vera í staðinn fyrir hina.

 

Þessum strák finnst aftur á móti ekki mikið mál að fara húfulaus út!

 

 

X X

Hetja að klifra í tré...þar sem hann sat svo reyndar fastur og vildi láta bjarga sér niður :)

 

 

Tókum með okkur nesti...ótrúlega góða köku með bláberjum og hvítu súkkulaði og rabarbarasaft

 

Arnaldur Kári sælkeri gaf hvoru tveggja sín bestu meðmæli

 

X

Ástþór Örn sveiflaði sér aðeins í þessari grein áður en haldið var heim og reyndi svo að aðstoða litla bróður
en það gekk nú ekki alveg enda er hann farinn að taka vel í!!!

 

Takk fyrir kveðjurnar í Gestabókina, mjög gaman að lesa þær.