Sumarlok í sveitinni

 

    Vorum fram í ágústlok í sveitinni og þó að maður gæti fundið svolítinn haustilm í lofti var sumarið sem betur fer ekkert á því að kveðja alveg. Hér eru nokkrar myndir, gjörið svo vel!

 

Þessir bræður hafa borðað fullt, fullt af ísum þetta sumarið!

 

Arnaldur Kári heilsar upp á Frakk sem elskar að fá smá athygli og klór!

 

Og Neista leiðist heldur ekkert að fá knús

 

Kíktum í Mástaðarbyrgi snemma í ágúst og vonuðumst eftir að finna sveppi en svo heppin vorum við nú ekki

 

 

Þóra vinkona okkar í veiðihúsinu gaf þeim bræðrum flugdreka sem flugu hátt og ég held að Arnaldur Kári
hafi sjaldan skemmt sér eins vel!

 

Arnaldur Kári sumarstrákur

 

Við kölluðum á Ástþór Örn að koma út að leika og hann mætti
út eins og kuldaboli sjálfur, var svo vel kappklæddur

 

Bræður á röltinu

 

 

Oft ansi stutt í einhvern fíflagang þó þeir séu nú ofast ansi góðir karlagreyin

 

Legið og hlustað á grasið vaxa

 

 

Arnaldi Kára þykir óskaplega skemmtilegt að teikna og er líka duglegur að æfa sig að skrifa stafi,
aðallega sína eigin en líka vina og vandamanna...já og H fyrir hákarl og L fyrir lax!!

 

Síðustu plöntum komið niður, hér verið að setja niður lerkitré en við látum okkur dreyma
um lerkisveppi á eigin landi í framtíðinni og höfum því sett niður nokkur lerkitré.

 

Kíkt út á ágústkvöldi hvort að kindur séu nokkuð á leið í holtin okkar þar sem þær eru
svakalega skæðar í plöntunum...alveg hræðilegar og geta eyðilagt mjög, mjög mikla vinnu á
örfáum klukkutímum.

 

 

 

Og tvær fallegar sólsetursmyndir og með þeim sendum við síðsumarskveðjur til ykkar lesenda!