Sól og sumar í sveitinni

 

  1. Hér koma fullt, fullt af myndum úr sveitinni. Júlí hefur liðið hratt þar sem við höfum verið mest megnis útí sól og sumaryl...var ágætt þegar fór aðeins að rigna í vikunni. Búið að veiða svolítið, fara á hestbak og koma niður heilmiklum fjölda af plöntum. Svo er líka búið að hafa það gott, njóta sveitasælu og veðurblíðu!

 

Á leið í veiðiferð í byrjun júlí

 

Horft í átt til jökulsins á leið niður í Sjávarfoss

 

Arnaldur Kári vonaðist til þess að laxinn myndi stökkva upp í háfinn sem hann vildi ólmur taka með niður að ánni

 

Píla, Ástþór Örn, afi Ástþór og Arnaldur Kári fylgjast með löxunum stökkva

 

Afi Ástþór reynir við laxinn

 

 

Sigurður Ágúst setti í fisk sem hafði nú betur á endanum frelsinu feginn

 

Svona líka fínir sumarbræður við ána

 

Haldið heim, fisklaus reyndar en sæl eftir fallegan morgun við ána (...jú auðvitað hefði verið gaman að taka einn fisk með heim!!!)

 

Við höfum verið ótrúlega heppin með veður í sumar og notið hlýrra og sólríkra daga. Má eiginlega segja að það
hafi verið einum of mikið af því góða og við reyndum að vökva og fríska hér við tré...minna gátum við gert fyrir ána
sem minnkaði með hverjum deginum þegar mesti þurrkurinn var.

 

Arnaldi Kára leiddist ekki þetta vökvunarstand og kom okkur oft ansi
"skemmtilega" á óvart með smá vatnsskoti hér og þar!!

 

Sumar, sumar, sumar...ahhh!

 

Píla hefur verið óskaplega þreytt í sumar en ber sig þó nokkuð vel á tólfta ári. Náði að lauma sér með í nokkra reiðtúra
fyrr í sumar en það er nú eiginlega orðið of mikið fyrir hana þannig að við erum farin að reyna að halda henni heima við þegar
hestarnir eru gerðir klárir.

Arnaldur Kári var fullviss um að þarna færi halastjarna yfir Dal...ja maður veit aldrei!

 

 

Léttir svo fax- og taglprúður að hann verður eins og ævintýrahestur svona í sólinni

 

Þeir nafnar mæta í hlað eftir vel heppnaðan reiðtúr

 

Ástþór Örn búinn að vera duglegur að fara á bak í sumar og gengið vel
að festa allt vel í minni (og kenna okkur hinum!) það sem hann lærði í reiðskólanum fyrr í sumar.

 

Ég hef líka verið dugleg að fara á hestbak!

 

Arnaldur Kári hefur líka verið duglegur að sníkja sér far á háhesti!!
Hér eru þeir feðgar á nýrri brú sem var verið að hlaða yfir einn skurðinn.
Brúin er nú fullgerð (með einu lagi til viðbótar en sést hér á myndinni) og er bæði
mann- og hestaheld...sjáum hvort vetur konungur getur nokkuð unnið á þessari eins og fallegu trébrúnni
sem var reist yfir skurðinn fyrir nokkrum árum.

Arnaldur Kári nýtur góðs af því að eiga stóra bróður sem gengst mjög upp í hlutverki sínu
og getur því fengið hann til að bera sig á hestbaki stundum...svona þegar við foreldrarnir erum ekki að predika yfir honum að hann eigi ekki að vera að bera þungan litla bróður á bakinu!

 

Þeir bræður á leið á hestbak...Ástþór Örn fékk far berbakt á Frakk upp í gerði

Arnaldur Kári tók nokkra hringi á Létti

 

Ástþór Örn á eigin fararskjóta, honum Frakk

 

Ég fæ Frakk stundum lánaðan og hafði Ástþór Örn engan húmor fyrir því þegar
ég sagði honum að Frakkur hefði sagt mér að eigandi sinn færi svo sjaldan á bak sér að ég mætti
bara eiga hann í staðinn!!!

 

Ekki er nú mikið búið að leika inni í júlí! En það er líka ágætt að hvíla sig stundum frá sólinni og
sitja inni og teikna.

 

Þeir bræður voru svo heppnir að hafa hana Amelíu frænku sína (já og líka Tinnu náttúrlega!) hér í sveitinni
í nokkra daga.

 

Mikið leikið úti en stundum aðeins slakað á og horft á hitt og þetta, Litlu snillingarnir voru sérstaklega vinsælir!

 

Einn góðviðrisdaginn drifu þau sig í pottinn eftir að hafa drullumallað framan af degi, búið til jarðgöng
og sullað einhver ósköp!

 

 

Ég nýtti góðviðrið og skellti mér á hestbak

 

 

Höfum komið niður þó nokkuð af stiklingum og plöntum í sumar; birki, reyni, furu, greni, elri, lerki og eitthvað af
víði í skjólbelti. Nú er bara að bíða og sjá hvernig þetta allt braggast á næstu árum.

 

xxxxx

Það er gaman að rifja upp nokkurra ára gamlar myndir og sjá börnin stækka og trjánum fjölga!! Myndirnar hér að ofan og neðan til vinstri eru frá árinu 2005 en þessi til hægri
tekin núna í júlí - heilmargt gerst á ekki fleiri árum!

 

xxxx

 

Verið að flytja plöntur, lítið brot af því sem var sett niður í heimaholtið í sumar

 

Skyndilega barst ansi mikil brunalykt til okkar í holtið og höfðu þá nágrannar okkar orðið
fyrir því tjóni að kviknað hafði í dráttarvél. En það slasaðist sem betur fer enginn.

 

Arnaldur Kári fylgdist með öllu saman og fannst mikið til þess koma að sjá löggu og slökkviliðsbíl bruna um sveitina

 

Reyniplöntu komið fyrir á góðum stað þar sem hún nær vonandi að blómstra fyrir okkur í framtíðinni.

 

Ilmandi sírena í heimaholtinu

 

Og verið að taka holur annars staðar í Dalslandinu þar sem við settum svo niður fleiri plöntur

 

 

Hér er enn eitt holtið þar sem skjólbelti eru farin að skýla og
við því farin að setja niður birki, furu og greni.

Á leiðinni í holtið að koma niður plöntum

 

Arnaldur Kári með einn af fjölmörgum töfrasprotum sem hann hefur fundið í sveitinni í sumar!

 

Mér finnst þessi mynd af Arnaldi Kára að leika Kalla á þakinu alveg óborganleg!!!

 

´

 

Trjámyndirnar orðnar fastur liður! Hér er Arnaldur Kári við birkitréð sitt í júlí 2011

Júlí 2010

Júlí 2009

 

Ástþór Örn við birkitréð sitt í júlí 2011

xxxx

2010, 2009 og 2008

xxxx

Og myndirnar frá 2007, 2006 og 2004

 

Og hér eru þessir sístækkandi bræður í gervi rabarbarariddara!!!

 

 

Afi Ástþór tók þessa boltafimimynd í góða veðrinu fyrr í sumar

 

Afi tók líka þessa sumarlegu mynd

 

Hann afi náði líka fínum myndum af þeim bræðrum saman á baki Frakks.

 

Mér finnst þessi mynd mjög skemmtileg...veit reyndar ekki alveg hvað hann Ástþór Örn er að gera með lopahúfuna
á sólardegi!

 

Um daginn drifu þeir nafnar og Sigurður sig í hestaferð. Arnaldur Kári fylgdist með þegar var lagt á
og gaf Skugga nebbakoss áður en hann hélt af stað

 

Rétt áður en var lagt af stað

 

Áð á leiðinni sem var nokkuð löng, einir 5 tímar og farið hringurinn í krinum Seljafellið

 

 

 

Þessa tók Ástþór Örn í ferðinni

 

 

Hér hefur dúfa gert sig heimakomna í einu af húsunum. Við vitum ekki alveg hvaðan hún
kom en við kíkjum reglulega í heimsókn til hennar og þeir bræður ákváðu að hún ætti að heita Dúa/Dúi.

 

Það fór aðeins meira fyrir þessum gesti, læðu af næsta bæ. Hún dvaldi hér hjá okkur í nokkra daga og var svo
gæf og ljúf að við vildum öll eiga hana! Píla var orðin ægilega sár yfir því hvað Ástþór Örn nennti lítið að leika við hana
því hann var alltaf að fara að leika við kisu. Þegar hún hélt heim aftur varð Ástþór Örn því voðalega leiður þar sem hann var held ég farinn að halda að
hún yrði bara alltaf hér að sniglast. Hann var að velta fyrir sér hvort hann ætti að kíkja yfir á bæinn til hennar og heilsa upp á hana, hefur nú ekki enn skellt sér.
Þessi kisa er eins bröndótt og kisa sem ég átti þegar ég var lítil og við pabbi vorum um tíma að spá í það hvort að þetta væri kannski sú, mætt aftur kannski á sjöunda lífi!

 

En þessir ferfættu vinir okkar koma ekkert og fara eins og þeir vilja sem betur fer! Hér skellt Arnaldur Kári
sér á bak Neista með afa. Neisti er fimm vetra, fallegur og óskaplega ljúfur. Hann á svo sem ekki langt að sækja ljúfa lund,
undan Prelodíu og Mætti frá Torfunesi. En Máttu er einmitt að keppa með landsliði Sviss á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Austurríki núna í ágúst.

 

Þessi litli knapi dreif sig og blés nokkrar bifukollur áður en hann skellti sér aftur á bak

 

Og þá skelltu þeir sér saman á Dufgus einn hring. Dufgus er fyrsta folaldið sem fæddist hér í Dal
árið 2004. Hann er bleikálóttur, undan henni Elfu sem var fyrsta hrossið sem við eignuðumst hér og Armi frá Sveinatungu.

 

 

Enda á kvöldsól í sveitinni. Vonum að þið hafið það öll gott. Sendið okkur endilega kveðju í Gestabókina!