Hér og þar í júní

  1. Hér koma nokkrar júnímyndir en hlaupabóla setti mark sitt á þann mánuð hér á heimilinu! Þegar Ástþór Örn kláraði hlaupabóluna dreif hann sig og kláraði reiðnámskeið. Við vorum svo um það bil farin að halda að Arnaldur Kári væri bara sloppinn eða hefði fengið ósýnilegu útgáfuna þegar hann lagðist daginn áður en leikskólinn fór í sumarfrí. Hann fékk að kenna mun meira á bólunni en bróðir hans. Varð frekar lasinn, fékk mikið af bólum...og varð ansi pirraður og fúll. Var því ekki sofið mikið og ekki gefið mikið fyrir það að ekki mætti klóra sér. Fékk ekkert svo mikið af bólum í andlitið en svona nánast alls staðar annars staðar. Þessi litli karl okkar er með ansi viðkvæma húð og þar sem hann er ekki með hlaupabóluútbrot er eins og barnaexemið sem við könnumst við frá því hann var yngri hafi fylgt í kjölfarið. Þar sem var mikið af bólum var þetta allt frekar lengi að ganga yfir og er á mörkunum að allar bólur séu orðnar þurrar.
  2. Ástþór Örn var ansi glaður að hafa sloppið vel þegar hann sá hvað litli bróðir fékk að kenna á því. Við sáum lítið af honum eftir að hann jafnaði sig því þá var já reiðnámskeiðið klárað og svo dreif hann sig á leikjanámskeið með vini sínum hjá skátunum í síðustu viku. Vikan sú var mun rólegri hjá okkur Arnaldi Kára og þökkum við bæði fyrir það að maður fái ekki að kenna á hlaupabólu oft um ævina!!

 

Á milli hlaupabólubylgna áttum við nokkra góða daga og skruppum meðal annars í
Húsdýragarðinn

 

Sápukúlugrínið alltaf vinsælt

 

Notalegt að liggja og sofa í sólinni

 

Geithafur klórar sér í bakinu!

 

Þessi alltaf á hlaupunum

 

Ástþór í gegnum gosbrunninn

 

 

Ilmreynir í blóma...svo falleg blómin og gefa blómum aldintrjáa ekkert eftir

 

Alaskaeplatré

 

 

Þröstur að baða sig

 

zzzzz

Ástþór Örn við uppáhaldsstaðinn sinn í grasagarðinum þar sem kryddjurtirnar og "hlaupabrautin" er

 

Ilmandi lavenderblóm

 

Arnaldi Kára er nú frekar lítið gefið fyrir þessar myndatökur en lætur sig hafa eina og eina uppstillingu!

 

Þessi svartþröstur var aftur á móti í ágætu myndastuði

 

Og verið að fara að sækja Arnald Kára á leikskólann

 

Hann líktist helst kolanámumanni þegar hann var sóttur eftir að hafa verið að leika sér úti!

 

Í góða veðrinu er notalegt að sitja á svölunum og spila

 

eða leika playmo...

 

nú eða byrja á peysu...sem mér varð ágætlega ágengt með á meðan Arnaldur Kári var hér heima með bóluna

 

Ástþór Örn að klára reiðnámskeiðið. Vel heppnað og skemmtilegt eins og fyrri ár.

 

Fékk viðurkenningarskjal og var alsæll með þetta allt saman og
hefur verið að fræða okkur hér um rétta ásetu og fleira!

 

Í blálok júní var orðin frekar þung brúnin á iðandi Arnaldi Kára og ég bauð honum því út að hjóla í blíðunni...sem gladdi þennan stúf óskaplega mikið!

 

  1. Komum við á róló sem er hér rétt hjá áður en við hjóluðum áfram, kíktum eftir andarungum og fleiru.
  2. Á heimleiðinni var kominn hópur af leikskólakrökkum á rólóinn þannig að við hjóluðum bara áfram þar
  3. sem ég ábyrgðist ekki að barnið væri hætt að smita.

Aðeins tappað af uppsafnaðri orku!

 

 

 

Gullregn fallegt í fullum skrúða

 

Aðeins rólað í lok ferðarinnar

 

  1. Húfan fékk að fjúka enda veðrið voða gott. Arnaldur Kári er annars frekar lítið fyrir það að sleppa húfu og vettlingum
  2. og þarf eiginlega að láta slíkt hverfa án þess að hann sjái á ljúfum sumardögum!

 

Hafið það sem allra, allra best!