17. júní og dagarnir á undan
Gleðilega þjóðhátíð! Það sem tíminn líður hratt. Af okkar bæ er mest lítið að frétta. Skólaslit hjá Ástþóri Erni 7. júní og hann hefur þar með lokið 2. bekk (talandi um að tíminn líði hratt!). Hann byrjaði svo á reiðnámskeiði 7. júní en fékk hlaupabólu eftir nokkra daga þar sem varð til þess að hann gat ekki klárað námskeiðið. Hann var voða leiður yfir því karlgreyið enda í skemmtilegum hóp með góðan hest. En hann byrjar með öðrum hóp eftir helgi og það verður áreiðanlega alveg jafn gaman! Þannig að nú bíðum við eftir að Arnaldur Kári taki við. En fyrir bólu hjá Ástþóri og núna allra síðustu daga höfum við verið heilmikið úti enda hefur mikið hjólaæði gripið Ástþór Örn og hann drifið okkur hér eða vini sína út að hjóla þegar færi gefst.


Arnaldur Kári hefur í nægu að snúast í garðinum, mig minnir að hér hafi hann verið að færa kindum hey

Ekki hafa nú verið margir sólardagar hér hjá okkur í júní en eimnhverjir þó

xxx
Blásið og blásið...og svolítið hellt niður líka!

Ástþór Örn á ferðinni

Hittum fyrir þessa andarmömmu með lítil kríli





Og ein sumarmynd!

Ástþór Örn að stinga okkur af
XXX
Smá fimleikar á heimleiðinni

Og hlaup líka!

Skátar í hátíðarskapi sem urðu á vegi okkar á heimleiðinni

