Í lok maí

Fórum í sveitina um helgina, náðum að setja niður nokkur tré og sitt hvað fleira. Reyndar setti vindurinn nú svolítið strik í reikninginn og svo var hann Arnaldur Kári kominn með blússandi hita á föstudagskvöldinu þannig að hann hélt sig innan dyra. Núna er svo farið að síga á seinni hlutann í skólann hjá Ástþóri Erni og hann orðinn ansi spenntur að komast í sumarfrí. Í gær fórum við á skólaslit í tónlistarskólanum og ekki hægt að segja annað en að Ástþór Örn hafi uppskorið vel eftir þennan fyrsta vetur, með frábærar einkunnir og það sem er enn skemmtilegra og mest virði er hvað hann hefur haft gaman að þessum fyrsta vetri. Arnaldur Kári fór svo ásamt sínum árgangi yfir á aðra deild í leikskólanum, leist vel á það allt saman og tillkynnti okkur stoltur í lok dagsins að hann væri orðinn Hjallastrákur! Hann fer svo í sumarfrí í lok júní.

En ég læt þetta nægja í bili, hér koma nokkrar myndir!

 

Þeir nafnar skelltu sér á hestbak

 

Hitað upp í gerðinu áður en lengra var haldið

 

 

Haldið í fyrsta reiðtúr sumarsins

 

...og aftur á heimleið!

 

  1. Aumingja Píla lét sig hafa það að fara með...en sú var þreytt og svolítið á eftir á heimleiðinni.
  2. En það má ekki gleyma því að hún er líka rúmlega ellefu ára...og er ekki formúlan hvert hundsár samasem sjö mannsár!

 

  1. Litli lasarusinn sem var voðalega lasinn framan af helgi en hressari á sunnudaginn. Hann var því bara inni þessa helgi
  2. í rólegheitum og lét ömmu stjana við sig.
  3. Hélt sig svo heima í gær (mán.) í rólegheitum svo að hann gæti farið og tekið þátt í flutningnum í leikskólanum.

 

  1. Nú var farið að róast heilmikið í fjárhúsunum, flestar kindur farnar ásamt lömbunum sínum niður
  2. á flatir. Heima við eru nýjustu lömbin enn ásamt mæðrum sínum.

 

Á laugardaginn fóru hún Eva sem er hér ásamt Lenu Liljudóttur og mini-Tögg (forystuhrúturinn okkar sem sést hér neðar er pabbi þessara lamba og hrúturinn litli er alveg eins og hann!)

 

 

 

Hófsóleyjarnar fallegar...svolítið seinni að spretta í ár enda hefur verið svolítið kalt í sveitinni

 

Reynt að hemja vindinn með því að planta trjám!

 

Ástþór Örn farinn að æfa golfsveifluna!! Þykir alveg ótrúlegt hvað kúlan lætur stundum illa af stjórn!

 

Fallegur kvöldhiminn á laugardagskvöldið og við Ástþór Örn og afi Ástþór á leið í fjárhúsin

 

  1. Að kíkja á hana Furu (mína!) og fallegu gimbrarnar hennar tvær sem hún bar fyrr þann dag
  2. og lauk þar með sauðburði 2011

 

  1. Þessar litlur voru ekkert á því að láta halda mikið á sér, jörmuðu þá
  2. svo sárt á mömmu sína að við vorum ekkert að leggja svoleiðis brottnám á þær!

 

Þegar við vorum að fara heim á sunnudaginn leyfðum við Arnaldi Kára

að líta við í fjárhúsunum til að líta á nýju lömbin. Honum fannst líka ekki annað hægt en að kveðja hann Tögg.

 

Ástþór Örn niðursokkinn í stærðfræði

 

xxxxx

Og alveg nýr strákur eiginlega...Arnaldur Kári nýkominn úr klippingu :)