,
,![]()
Maídagar
Verið nóg að gera frá því við komum úr sveitinni um daginn og hér eru myndir héðan og þaðan! Dagarnir nú verið heldur kuldalegir og maður dauðvorkennir fólki um allt land sem er ýmist í hífandi roki og kulda, ösku og kulda eða snjókomu...og kulda. Þó að allir geri sér nú grein fyrir því að á Íslandi sé ekki komið hásumar í lok maí er þetta nú einum of! Ástþór Örn kláraði tónlistarskólann í síðustu viku og nú förum við sjálfsagt að fara að vita hvort hann komist að á hljóðfæri næsta haust. Hann hefur verið alsæll í tónlistarskólanum í vetur og leikur sér hér heilmikið með flautuna og er kominn með nokkur Eurovisionlög vel á hreint og svo er Arnaldur Kári duglegur að biðja um óskalög og er þar Lady Gaga, Bubbi byggir og StarWars þemað vinsælust!!! Arnaldur Kári er svo að færa sig upp um deild í lok mánaðarins. Honum leist ekkert á það í fyrstu en er núna búinn að fara í nokkrar heimsóknir og líst betur á þetta. Þó að ekki sé langt á milli deilda eru þetta breytingar engu að síður! Ástþór Örn fer svo á reiðnámskeið í byrjun júní og ætlar svo með vini sínum á leikjanámskeið þar á eftir. Nóg að gera!


Í síðustu viku var vorhátíð í skólanum hans Ástþórs Arnar. Þeir feðgar skelltu sér og skemmtu sér vel








Síðustu helgi drifum við okkur í bæinn og fylgdumst með spánska götuleikhúsinu/loftfimleikunum

Mjög flott allt saman!

Við Ástþór Örn óskuðum þess að svona glimmerrigning væri hluti af veðurfarinu hér

Rölt í bænum

Ástþór Örn á Lækjartorgi við nýuppgerðu húsin sem verða vonandi orðin líflegri áður en langt um líður

Og hér með margumræddan glerhjúp í baksýn!!
,
,
,![]()