Vordagar

Drifum okkur í sveitina um helgina. Þar hafði lömbunum fjölgað heilmikið frá því við komum síðast og ekki svo margar óbornar núna. Það var fínasta veður og hægt að vera mikið úti og Arnaldur Kári fór meira að segja á hestbak í fyrsta skiptið og líkaði mjög vel. Við renndum svo í bæinn og skelltum okkur beint í Hörpuna þar sem Maximús átti sviðið. Hér koma nokkrar myndir.

 

  1. Má til með að setja inn þessa fínu mynd af Ástþóri Erni alsælum að knúsakanínuna Blanche.
    Við litum í heimsókn í síðustu viku til frænda okkar sem á kanínur, naggrísi, kisu og fiska svo að fátt eitt sé nefnt.
  2. Mér þótti ekki leiðinlegra en þeim bræðrum að koma í heimsókní svona dýraríki og auðvitað líka til skemmtilegra gestgjafa!

 

Þegar við komum í sveitina voru kindur og lömb úti að njóta veðurblíðunnar

 

Ástþór Örn gat varla beðið eftir að komast í sveitina til að sjá forystulömbin
undan henni Fíónu sem hafði borið gimbur og hrút nokkrum dögum fyrr.
Hér er Ástþór Örn með gimbrina sem er falleg eins og mamma hennar.
  1. Hluti af hópnum fékk svo að fara niður á flatir og mun svo fara á fjall í framhaldi þegar veður leyfir
  2. Okkur Ástþóri Erni finnst alltaf jafn súrt að horfa á eftir þessum litlu dúllum fara með mömmum sínum
    úr heimahaganum! (myndina tók afi Ástþór)
Arnaldur Kári var nú á leið inn í háttinn þegar kindurnar voru reknar niður á flatirnar og ég
var alveg púuð niður á staðnum að ætla að taka hann úr fjörinu! Við röltum því með og hjálpuðum til
við að koma hópnum rétta leið.
  1. Þessa mynd tók afi Ástþór líka af Míu og Mímlunum hennar tveimur þar sem þær stikuðu niður veg
  2. Við Arnaldur Kári kláruðum ekki alveg allt prógrammið heldur röltum okkur heim á leið en þessi
    kútur var alsæll með að hafa fengið að taka þátt í fjárrekstrinum
  3. Þessir voru aftur á móti svolítið lengur í fjörinu og komu við og heilsuðu upp á hrossin þar sem
    afi Ástþór náði þessari fínu mynd af þeim með honum Frakk

 

Og þessi gaukur getur sjaldan látið polla og smálæki í friði og nær ansi oft að verða rennblautur
í fæturnar. Afi hans taldi hann þurfa hærri stígvél en ég sagði að hversu há sem stígvélin væru færi hann bara
lengra...sjálfum fannst honum skynsamlegast að vera bara sem mest í veiðivöðlunum!!
  1. Sumarið að nálgast í sveitinni og stelkurinn sem á þessi ekk má vera feginn að ekkert okkar hafi
    verið búið að eyðileggja komandi kynslóð hans því hann var með hreiður á stað þar sem við erum
    mikið á ferðinni
  2. Og enn eitt merki þess að sumarið er ekki langt undan, verið að járna hross!
  3. "má ég halda á lambi...?" er setningin sem heyrist einna oftast frá Ástþóri Erni þegar við erum í sveitinni á meðan sauðburði stendur
  1. Ég get yfirleitt ekki neitað barninu enda á ég sjálf afskaplega erfitt með mig og á þarna orðið
    nokkrar "vinkonur" í mömmuhópnum sem mér sýnist hættar að álíta mig skuggalegan barnsræningja
  1. Sumar mömmur er ég ekkert að ónáða og læt mér nægja mynd!
  2. Þessi litla gimbur er í voðalegu uppáhaldi hjá okkur Ástþóri Erni...en við örugglega í þeim mun minna uppáhaldi hjá mömmunni reyndar
  3. Gæfa með lömbin sín að slappa af í sólinni
  4. Eftir að lömbin fóru á flatirnar reynum við að vera dugleg að líta þar við og aðgæta að allt sé í lagi
  5. Mér finnst þetta voða fín mynd af þeim bræðrum
  6. Þetta er hún Eva sem við áttum von á að bæri um helgina. Á laugardaginn leit ég við hjá henniklukkan tuttugu mínútur í sjö og þá var hún svona aðeins orðin líkleg en ekkert meira en það þó!Við byrjuðum að horfa á söngvakeppnina en Sigurður rölti nú út skömmu eftir að hún byrjaði og þávar allt að gerast hjá Evu. Við drifum okkur því út til hennar og fylgdumst með og í heiminn komu tvö fullfalleg lömb, gimbur og hrútur. Pabbinn er hann Töggur sem þið hafið nú oft séð hér á síðunni en hrúturinner einmitt svona "mini-me" af honum! Við röltum svo inn rétt áður en að íslenski hópurinn steig á svið.

 

  1. Þeir nafnar skruppu á hestbak í vorblíðunni
  2. Ástþór Örn ætlar að skella sér á reiðnámskeið í júní eins og síðustu sumur og er orðinn mjög spenntur

  1. Arnaldur Kári hefur nú ekki verið hrifinn af því að fara á bak þó að hann sé voða áhugasamur um hrossin.
  2. En á laugardaginn kviknaði á einhverju og hann vildi ólmur skella sér á bak. Hann fékk því þá ósk uppfyllta
  3. og fannst þetta óskaplega skemmtilegt. Var rétt sestur á bak þegar við heyrðum hann góla "jí-ha" bara eins og hann hefði verið að
  4. mæta úr villta vestrinu í gær!!!!

 

Held bara að þetta sé fyrsta myndin af þeim bræðrum saman á baki!

 

Þeir voru teymdir einn hring saman og skemmtu sér konunglega

 

  1. Rétt áður en við renndum aftur til borgarinnar náðum við að hitta Davíð frænda og stelpuna hans (þá yngri)
  2. hana Lilju Rós. Við hlökkum til að hitta hana aftur áður en þau fljúga aftur til Þýskalands.