Blábyrjun aprílmánaðar
![]()
Ákvað að drífa hér inn bara næsta myndaskammti á meðan ég væri í uppfærslugír! Þessi fyrsta aprílhelgi var hin besta. Bæjarferð, ístöltsmót, kaffiboð hjá Birnu frænku þeirra feðga og svo sunnudagsmatur í Langa! Allt vel heppnað. Leyfi myndunum bara að tala sínu máli! Gjörið svo vel :)

Á laugardaginn drifum við okkur í bæinn og fylgdumst með skrúðreið í gegnum bæinn og upp Laugaveginn.
Mjög skemmtilegt og notalegt að finna hestailm...já og svolitla skýtafýlu í Bankastrætinu.
Veðrið var yndislegt og gaman að fylgjast með þessu öllu saman. Hestaþemað hélt svo áfram þegar við
Ástþór Örn og afi Ástþór drifum okkur á ístöltskeppni í Laugardalinn aðallega til að fylgjast með henni Söru.
Keppnin var stórskemmtilegt og mikið af svakalega flottur og hæfileikaríkum hestum og knöpum.
Sara komst ein kvenna í A-úrslit á Dívu sinni og enduðu þær í þriðja sæti, alveg glæsilegt :)


Fengum okkur göngutúr í góða veðrinu eftir að hafa fylgst með þessum tæplega
tvö hundruð hrossum fara upp Laugaveginn


Fengum okkur svo að borða á Búllunni og skoðuðum svo nokkur skip
við höfnina!

Í gærkvöldi kom smá hret en það var fljótt að gleymast í morgun þegar
vorið náði aftur yfirhöndinni! Við mæðgin drifum okkur því út í
góða veðrið á meðan Sigurður skrapp aðeins vestur með afa Ástþóri
og ömmu Kötu

Ferðinni var heitið niður að tjörn


Mér finnst þessi gæs sem gægist þarna við hliðina á Arnaldi Kára
svo mikið æði...eins sem ætli að fá að vera með á myndinni!!

Og værðarleg skúfönd

Álftirnar kunna aldeilis vel að stilla sér upp á mynd

Og þessar dúllur líka!

Í dag var svo haldin vorsýning í myndlistaskólanum. Hér má sjá verkefnið Fuglar í trjám sem hópurinn sem Ástþór Örn
hafa meðal annars verið að vinna að í vetur

Frá hugmynd að fullgerðu verki Ástþórs Arnar

Eftir sýningu fórum við í vöfflukaffi til Birnu og Veigars til heiðurs henni Bibbu frænku þeirra feðga sem átti 85 ára afmæli
fyrir stuttu. Nú svo enduðum við helgina hjá ömmu og afa í Langa í mat og þeir bræður göbbuðu afa í smá
lönguvitleysu og ólsen!
