Mars!  

 

 

Jæja, loksins eitthvað uppfært hér á bræðrasíðunni. Mánuðurinn leið svo hratt, nóg að gera hjá öllum og myndavélin eitthvað tekin sjaldan fram. Auk þess hafa síðuvandræðin ekki hvatt mig til að reyna að troða meira efni hingað inn. En hér eru nokkrar myndir, meðal annars af þeim bræðrum á öskudaginn og kannski að ég fari nú líka aðeins að færa forsíðuna í meiri vorbúning!?! Annars er allt ágætt að frétta af okkur. Ástþór Örn krækti sér reyndar í einhverja pest um daginn og var heima í viku karlgreyið. Við hin sluppum að mestu en greinilega mikið af alls kyns leiðindum að ganga og á deildinni hjá Arnaldi Kára í leikskólanum lágu mörg og voru stundum bara 7-8 börn mætt af 23! En vonandi að þetta fari allt að lagast hjá öllum með hækkandi sól. Annars verið nóg að gera, kannski helst hjá Ástþóri Erni!! Myndlist, sund og tónlist. Við fórum einmitt á hljóðfærakynningu í tónlistarskólanum í mars sem var stórskemmtilegt. Það var alla vega erfitt að ætla að velja eitthvað eftir kynninguna. Ég öfundaði því

Ástþór Örn ekki mikið sem var með margt í huga fyrir kynningu og enn fleiri hugmyndir eftir hana. Hann hefur verið mjög ánægður í tónlistarskólanum í vetur, heppinn með kennara í forskólanum og þau búin að læra ansi margt. Á endanum var umsókn fyrir næsta vetur skilað inn og í fyrsta val setti hann píanó þverflautu til vara. Mér skilst að píanóplássin séu þó nokkur en þverflautuplássin ekki þannig að líklegra er að hann fái fyrsta val. Púha...ætli við verðum þá ekki að fara að auglýsa eftir píanói...? Og kannski láta langþráðan draum rætast og fara aðeins að reyna að læra sjálf að lesa nótur og spila?!?!

 

 

Veturinn sýndi sig heldur betur í mars

 

 

 

Og við reyndum að gleðja smáfuglana sem gátu aftur á móti sumir ekki sætt sig við að gefa mikið með sér!!!!

 

 

 

Við glöddum okkur líka, meðal annars með pönnsum á sunnudegi...Arnaldur Kári í náttfötum fram eftir degi eins og

vill nú stundum gerast um helgar því hann tekur helgarfríin mjög hátíðlega og vill stundum ekkert annað gera en að

kúra fram eftir, fara svo aftur og kúra með bók í rúmi einhvers og svona!!! Þeir eru mjög ólíkir með þetta bræðurnir

en Ástþór Örn er hér kominn fram um sjö leytið á hverjum morgni sama hvaða dagur er.

 

 

Arnaldur Kári að morgni öskudags...afar heppilegt að nokkrum dögum

fyrr hafði hann tekið búninga í sátt og vildi ólmur fara sem superman.

Á leikskólanum var hann svo í búningnum og þótti þetta tilstand allt hið

skemmtilegasta. Í fyrra þurfti að beita hann miklum fortölum svo hann

fengist í búning og það var ekki fyrr en Nemó-laxinn fór með að hann

treysti sér í bangsabúning!

 

 

 

 

Ástþór Örn/Harry Potter í heimsókn hjá afa Ástþóri og ömmu Kötu

eftir skóla á öskudaginn.

 

 

Ástþór Örn djúpt hugsi

 

 

 

Og Lubbi Krúsilíusson!

 

 

 

Og þeir bræður skelltu sér svo loksins í klippingu...alltaf ágætt að láta létta aðeins á þó það sé líka voða dúlló

að vera með svolítið hár!

 

 

Ástþór Örn að skrifa sögu fyrir skólann, má ekkert vera að því að líta upp!

Sagan þótti svo góð að hann var beðinn um að lesa fyrir krakkana í sínum árgangi :o)

 

 

 

Arnaldur Kári í risaeðluleik.

 

 

 

Ástþór Örn dreif sig svo á enn eitt sundnámskeið og máttum við koma í síðasta tímann og horfa á hvað krakkarnir

í hópnum væru orðin góð.

 

 

Arnaldur Kári er algjör selur og skemmtir sér konunglega í sundi...á sama aldri var Ástþór Örn nú bara eins og

lítill api um hálsinn á manni þannig að við foreldrarnir þurfum að hafa okkur öll við með þennan frakka sundstrák!!!

 

 

 

Mars kvaddi svo á vornótum og sól í augum!