Ástþór Örn 8 ára!

 

 

Í dag er Ástþór Örn átta ára...okkur finnst það nú hálf ótrúlegt! Og það sem þessi átta ár hafa flogið hratt, það er hreint með ólíkindum. En um leið finnst manni svo óralangt síðan þessi snáði kom í heiminn á Hillerød sygehus eftir að hafa látið bíða svolítið eftir sér! Afmælisbarnið er eiginlega búið að eiga tvo afmælisdaga að þessu sinni því hann bauð í afmælisveislu í gær og fagnaði svo sjálfum afmælisdeginum í dag. Ég ákvað að drífa inn nokkrar myndir (og freista þess að pláss sé fyrir þær allar!).

 

 

 

Hálftími í afmælisveislu og allt að verða klárt! Ástþór Örn að deyja úr spenningi...fylgdist vel með klukkunni!!

 

 

Ástþór Örn, bekkjarbræður hans og Matti frændi byrjuðu á að fá sér pizzur, spjalla og hlæja einhver ósköp!

 

 

 

 

 

 

Svo var leikið, farið í spurningakeppni...

 

 

Samin frumsamin lög og alls konar!

 

 

 

Afmæliskakan var hnallþóra í fjórum litum sem Ástþór Örn skreytti svo

 

 

 

Ástþór Örn að taka á móti ótal tillögum að afmælisóskum...en eins og lög gera ráð fyrir fékk þó enginn að vita hver óskin varð!

 

 

 

 

         

 

 

Það er fátt jafn notalegt og þegar heimilismeðlimir eiga afmæli um helgi! Þá er hægt að

drekka morgunkakóið í rólegheitum og njóta dagsins enn betur.

 

 

 

Það var mjög mikill spenningur fyrir afmælisgjöfunum og það reyndust líka vera nokkur atriði af óskalistanum á

bak við pappírinn. Arnaldur Kári gaf borðspil sem Ástþór Örn hafði óskað sér og nýjan leik í

nintendo. Afi og amma á Akureyri gáfu pening sem Ástþór Örn var alsæll með, enda alltaf að safna sér fyrir einhverju og

frá okkur fékk hann Lego kastala sem var búið að dreyma lengi um. Amma Kata og afi Ástþór komu svo í kaffi og færðu

afmlisbarninu óskaplega fallegt vatnslitað afmæliskort þar sem sjálfur uppáhaldshrútur Ástþórs Arnar, Töggur flytur honum

kveðju og LEGO spil. Hrabba og Valli litu líka í kaffi og gáfu þessum stóra strák yndislega mjúk náttföt og buxur.

Við sáum reyndar Ástþór Örn lítið þar til í kaffinu því hann var að koma kastalanum saman.

 

 

Arnaldur Kári kisa stokkin(n) upp í gluggakistu!

 

 

 

Myndavélinni var hér eitthvað meira umhugað um að ná kertunum í fókus en

afmælisbarninu...eða myndasmiðurinn bara að vera klaufi kannski frekar!

En hún nær samt að koma til skila hvað þessi átta ára strákur er

ótrúlega fallegur og frábær!

 

 

 

Skrafað um allt milli himins og jarðar í afmæliskaffinu! Amma Kata og Hrabba létu fara vel um sig í betri

sætum stofunnar og smelltust því ekki með á mynd.

 

 

Arnaldur Kári mjög upptekinn við að leika sér við nýtt púsl sem hann Matti frændi var svo góður að færa honum í gær.

 

 

 

Kát og hress mæðgin að kvöldi afmælisdags...já svona um það bil þegar Ástþór Örn 

varð akkúrat átta ára!!

 

 

 

Í kvöldmatinn langaði afmælisbarnið í makkarónugraut, sem var að sjálfsögðu orðið við.

 

 

 

Nærmynd af frábærum afmælisstrák

 

 

 

Og auðvitað líka mynd af þessum ofurhressa 3 ára og 2 mánaða strák!

 

 

 

Rétt fyrir svefninn hjá kastalanum fína. Arnaldur Kári söng svo afmælissönginn fyrir stóra bróður fyrir svefninn

og uppskar mikið lof og hrós hjá afmælisbarninu sem fannst hann frábærasti bróðir í heimi (já stundum er þetta

bara alveg eftir bókinni!!).