Gaman í snjónum!

 

Að sumri finnst manni alveg glatað að vera inni þegar kemur rosa gott veður hér á Íslandi...það er svo þannig þegar kemur almennilegur snjór að þá bara verður maður að nýta þá daga líka úti við!! Og núna er bara heilmikill snjór og við byrjuðum daginn á því að fara og labba svolítið í Elliðaárdalnum, vorum svo hér úti í garði og ég og strákarnir röltum okkur svo með snjóþoturnar í brekku hér rétt hjá sem er ansi vinsæl þegar snjór er. Fullt af myndum, gjörið svo vel!

 

 

 

Fallegt og vetrarlegt

 

 

víííí.....

 

 

 

Ótrúlega gaman í snjónum

 

 

     

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ástþór Örn ákvað að hvíla aðeins lúin bein í "skógargríninu" eins og hann kallar

þetta hálfgerða byrgi inni í skóginum í dalnum!

 

 

Og á leið út úr "skógargríninu"

 

 

 

 

 

 

Þessi strákur hafði engan tíma til að stilla sér upp með okkur á mynd en var á kafi í snjó að leika sér í staðinn!

 

 

 

Það var því ekkert annað að gera fyrir okkur en að nýta það að Sigurður væri með vélina

og stilla okkur upp á annarri mynd!!!

 

 

 

Þeir á leið inn í ótrúlega fallega trjáhvelfingu sem var svo falleg í snjónum

 

 

 

 

Ástþór Örn fékk sér sæti inni í "salnum" og lét hrífast með!

 

 

 

Sest við Harlemborðin í dalnum að borða nesti og heitt kakó

 

 

 

"...en hvað þetta er fínn lautarferður" sagði Arnaldur þar sem við sátum þarna

 

 

það breyttist þó þegar á leið...þegar búið var að pakka kökunum og kexinu - þetta ekkert fínt lengur!

 

 

Gífurlegt óréttlæti að mega ekki fá eins margar kökur og kex og maður vill!!!!!!!

 

 

 

Rúgbrauð með smjöri bjargaði málunum

 

 

 

Farið að snjóa þegar við yfirgáfum Elliðaárdalinn

 

 

Eftir að hafa fengið okkur síðbúna hádegishressingu dró ég þá bræður í enda götunnar þar sem er fínasta brekka sem

gaman er að renna sér niður. Þarna er Ástþór Örn að fara eina af mörgum ferðum.

 

 

 

 

 

Arnaldur Kári að "baka" brauð í snjónum

 

 

Eftir að hafa verið lengi í brekkunni og skemmt okkur vel var svo leikið

í garðinum. Ástþór Örn fékk svo nokkra vini sína í garðinn og saman var

búið til snjóhús...þá var myndasmiðurinn farinn inn að hlýja sér!

 

 

 

 

 

 

Munið eftir smáfuglunum...þeir hafa hér við húsið okkar hámað í sig epli, brauð og alls kyns fræ!

 

 

 

Má til með að birta mynd af þessum fallega Amaryllis sem nennti ekki að taka þátt í jólunum en gleður okkur núna í staðinn