![]()
![]()
![]()
Skemmtilegur febrúardagur
Í byrjun febrúar voru foreldraviðtöl í skólanum hjá Ástþóri Erni og því engin kennsla. Við byrjuðum daginn á því að fara í viðtal hjá henni Dóru, umsjónarkennaranumhans og það gekk vel. Ástþór Örn ánægður í skólanum og stendur sig frábærlega. Nú er svo sjálfur afmælismánuðurinn genginn í garð, en hann verður hvorki meira né minna en átta ára þann 19. febrúar. Mér sem finnst svo voðalega stutt síðan ég var kasólétt í Danmörku! En allt líður þetta! Hér eru nokkrar myndir frá þessum fína degi...stundum gott að vera í skóla og geta tekið sér frí þegar svo ber undir.

Við Ástþór Örn höfðum ákveðið að kíkja á sýningu í Gerðubergi og skellti
Valgeir vinur hans með okkur.

Það var ekki leiðinlegt að rekast á þau Kugg, Málfríði og mömmu hennar á safninu!

Ferðinni var heitið á stórskemmtilega sýningu sem unnin er upp úr norrænu goðafræðinni.
Hér stilla þeir sér upp með Fenrisúlfinum

Og þarna var sjálfur Surtur

Tókum þó nokkrar umferðir í stórskemmtilegu spili...ekki leiðinlegt að fá að kasta teningi í yfirstærð!

Þarna sést í hinn ægilega Miðagarðsorm sem hægt var að skríða í gegnum.
Við vorum svo heppin að stór hópur var að fara þegar við komum þannig
að við vorum þarna bara þrjú og því hægt að fara eins margar ferðir í
gegnum orminn og maður vildi!

Mjög ógnvænlegir vinir í kjaftinum á Miðgarðsorminum!

Í Gerðubergi stendur yfir árleg sýning á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum.
Mjög gaman að skoða myndirnar og glugga í allar bækurnar.
![]()
![]()
![]()

Þegar Arnaldur Kári var búinn á leikskólanum buðum við Ástþóri Örn honum í Húsdýragarðinn...sem er í miklu
uppáhaldi hjá þessum kút okkar!

Ástþór Örn í sápukúlu

Og Arnaldur Kári að heilsa upp á steinbítinn : )

Arnaldi Kára leist aftur á móti ekkert á að fara eitthvað að búa til stóra
sápukúlu

Í fjósinu

Og aftur mætt við selalaugina...þar vill Arnaldur Kári helst bara vera. Þarna var heilmikið fjör því selirnir
voru að fá síld að borða

Röltum svo aðeins um dalinn

Svakalega sætu bræðurnir

Það verður gaman að sjá grasagarðinn vakna aftur eftir nokkra mánuði!