Fyrstu myndirnar á nýju ári

 

Janúar allt í einu hálfnaður og ekki annað hægt en að koma inn nokkrum myndum. Árið fer vel af stað hjá okkur, vonum að það sé eins hjá ykkur líka. Þeir bræður ánægðir að vera komnir aftur á fullt í skólanum og leikskólanum. Ástþór Örn er svo einnig byrjaður í myndlistar- og tónlistarskólanum þar sem honum líkar voðalega vel. Hann ætlar svo að fara aftur í sundið í febrúar. Svo er Ástþór Örn náttúrlega farinn að hlakka svakalega til að eiga afmæli, við foreldrarnir skiljum aftur á móti ekki hvernig geti staðið á því að hann sé allt í einu að verða átta ára! Arnaldur Kári er hinn hressasti þó að það hafi verið pínu erfitt fyrstu dagana eftir jólafrí að fara á leikskólann og stakk hann upp á því fyrstu dagana að ég yrði bara með þeim á leikskólanum. Um daginn tilkynnti hann svo að hann ætti orðið kærustu!!! Já, það er fjör í þessu :)

 

 

 

Þrammað af stað í göngutúr á laugardaginn...ég dróst aftur úr því ég var að reyna að ná myndum af

auðnutittlingum uppi í tré! Þær urðu flestar voða hreyfðar þannig að ég hlífi ykkur við þeim!

 

 

 

Þessir bræður fá seint nóg af því að róla...verst að þið heyrið ekki gleðiópin í Arnaldi Kára

 

 

 

 

  

 

Ástþór Örn næstum átta ára!

 

 

 

Arnaldur Kári er bara ekkert gefinn fyrir það að stilla sér upp...en ég náði þessari þó!

 

 

 

Það eru því helst svona myndir sem nást af honum!

 

 

 

Ástþór Örn könglastórsafnari átti ekki orð þegar hann sá alla þessa fínu köngla uppi í grenitré

 

 

 

Það var því ekki annað hægt en að reyna að veiða nokkra

 

 

 

Arnaldur Kári vildi endilega reyna þetta könglatrix líka

 

 

 

Gekk ekkert allt of vel þannig að hann bað Ástþór Örn, sem honum finnst geta allt

að hjálpa sér!

 

 

 

 

Slakað aðeins á

 

 

 

Ég fékk að stilla mér upp með þessum sæta trjástrák...sé nú að ég ætti kannski að setja dótið mitt í tösku og hafa með

frekar en að troða svona út úlpuvasana!!! En hvað um það...við erum voða sæt og fín er það ekki?!

 

 

 

 Um helgina var ég farin að hafa áhyggjur af því að ég væri bara farin að

komast í hálfgert vorskap...svona alveg þangað til ég datt næstum á hausinn

á hálum gangstíg. En æðri máttarvöld komu mér niður á jörðina þar sem

allt var orðið hvítt í morgun, bræðrunum hér til mikillar gleði.

 

 

 

Æ, þetta er svo mikill krúsilíus. Má til með að láta hér eina sögu fylgja af honum frá því svolítið fyrir jól...er nú búin að segja einhverjum lesendum þessarar síðu hana þó!

Ég og Arnaldur vorum að lesa saman áður en hann fór að sofa. Eitthvað barst Gosi til tals. Hann þekkir söguna af tréstráknum vel og var að segja mér frá því að hann hefði ekki farið í skólann

heldur bara selt skólabækurnar en var svo eitthvað í vandræðum með næstu skref í sögunni en við fórum að ræða sirkusinn og af hverju nefið á Gosa hafi stækkað. Nema hvað ég segi eitthvað

svona "já og Jakob pabbi hans var karlgreyið að leita og leita að Gosa". Þá hváði Arnaldur Kári og spurði "ha, pabbi hans Gosa, var hann fuglinn í blómabúðinni"...og átti þar við Jakob í Blómavali.

Nei, ég sagði nú að Jakob væri líka strákanafn...þannig að fullt af strákum...pöbbum, öfum, bræðrum, frændum og svo framvegis hétu Jakob. Hann vildi nú alltaf koma fuglinum inn í

þetta og fannst ég nú komin út á hálan ís! Ég spurði hann þá hvort að það væri enginn Jakob á leikskólanum? og hann svaraði nokkuð ákveðið og svona hughreystandi: "nei, það eru engir

páfagaukar á leikskólanum...bara fiskar".

 

 

 

Fyrr í dag var verið að snyrta trén í garðinum og Arnaldur Kári gat heldur betur gert sér mat úr sprekinu sem lá hér eftir

 

 

 

Það var ósköp notalegt að koma inn í hlýjuna, fá sér smá kaffi og svo var málningardótið tekið fram.

Arnaldur Kári málaði fiskamynd sem fór svo upp á vegg hjá honum og svo málaði hann líka kertaglas.

 

 

Svoooo gaman!

 

 

Við reynum svo að uppfæra fljótlega. Vonum að þið hafið það öll sem best.