![]()
![]()
![]()
Áramót í sveitinni
Svolítið síðbúnar nýárskveðjur frá okkur! Vonum að nýja árið hafi byrjað vel hjá öllum. Við vorum í sveitinni um áramótin og höfðum það ljómandi fínt.
Allt svo farið að rúlla sinn gang eins og gengur eftir jólin. Hér eru nokkrar myndir úr sveitinni, margar úr fjárhúsunum enda margt að gerast þar á fengitíma og svo aðrar aðeins áramótalegri! Njótið vel.

Fallegur gamlársdagur í sveitinni, það blés þó svolítið og þá var ansi kalt

Í fjárhúsunum að gefa og heilsa upp á íbúa þar

Ástþór Örn með einum besta vini sínum í húsunum, forystuhrútnum Tögg. Ef allt gengur að óskum er von á
nokkrum hreinum forystulömbum í Dal næsta vor og verður mjög spennandi sjá hvernig það kemur út.

Skúmur, sem er svo fallega móbrúnn

Og ein gemlingsdóttir hans - þau eru ansi lík!

Arnaldur Kári dúðaður á leið á smá rölt með Pílu og Trýnu

Var ekki alveg með á hreinu hvað ætti að gera, ekki hægt að fara í sandkassann því þar var allt frosið!


Skemmtilegt að brjóta ísinn á pollunum en Arnaldur Kári sá fljótt að ekki borgarði sig þó að koma á of mikilli ferð og
hoppa á ísínn því þar sem hann var traustari gaf hann ekkert eftir og stúfurinn datt beint á rassinn!

Fallegt sólarlag á síðasta degi ársins




Ég er alltaf hrifnust af stjörnuljósunum!!!


Gamla árið kvatt! Við sprengjum nú ekki mikið í sveitinni og reynum að finna eitthvað sem gefur ljós en ekki
mikil hljóð.

Á nýársdag drifum við okkur í smá gönguferð

Byrjuðum á að heilsa upp á Neista og Merkan


Kíktum svo aðeins á trén í heimaholtinu

Og röltum loks niður að á...Arnaldur var held ég að suða um að sjá lax
á þessu myndamómenti!

![]()
![]()
![]()