Jólamyndir
Gleðilega hátíð! Vonum að þið hafið öll haft það gott yfir jólin. Við höfum haft það voða gott. Fannst ekki annað hægt en að ná jólamyndum inn fyrir áramót...
hér eru því nokkrar. Vona að árið kveðju á góðum nótum og 2011 verði öllum gott!

Jólastrákurinn spilaði eitt lag svona um það bil og jólin gengu í garð

...ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi!!

Við höfðum það alveg óskaplega gott á aðfangadagskvöld og amma Kata
og afi Ástþór voru með okkur

Þeir bræður hafa mjög svo skiptar skoðanir á sparifötum svo eitt er víst!!

Ástþór Örn las á pakkana

Á náttfötum á nýársdag

Arnaldur Kári að leita að drekum í bókinni frá Söru frænku

Við Ástþór Örn klæddum okkur og skruppum aðeins út í snjóinn


Engin var til gulrótin og því varð kartafla að nægja!


Amaryllisar í miklu fjöri! Rauðu drifu sig í að blómstra fyrr í desember, þeir bleiku eru í blóma núna og hvíti
mun gleðja okkur í janar einhvern tímann sýnist mér!



Arnaldur Kári á svolítið af nýju Legoi eftir góð jól!



Á fjórða degi jóla skruppum við á jólaball með afa Ástþóri


Þar var mikið stuð með jólasveinum og öllu saman!




Í jólafríinu drifum við okkur svo út í göngutúr og komum við á gubburóló





Við vonum að þið hafið öll haft það sem best og gleðilegt nýtt ár.