Desembermyndir

 

 

 

Eitthvað gekk illa að efna loforðið frá í lok nóvember um að desemberfærslur yrðu nokkrar! En það var þó ekki hægt að ná ekki að koma inn desemberalbúmi fyrir jól.

Þeir bræður eru búnir að vera í alls kyns jólaundirbúningi í skóla og leikskóla, farið á jólaball og fleira og fleira. Arnaldur Kári fór svo sína fyrstu ferð á slysó í lok síðustu viku...rétt fyrir þriggja ára afmælið! Hann datt á leikskólanum og þar sem hann gat ekki stigið í fótinn og kveinkaði sér mikið fórum við mæðgin og létum líta á ristina. Það var alveg bíó að fylgjast með honum því hann skemmti sér alveg ótrúlega vel, fannst jólaskrautið á staðnum alveg til fyrirmyndar og dótið á biðstofunni alveg stórskemmtilegt! Þannig að þessi kútur sem á það stundum til að vera svolítið þver tók þetta verkefni mjög föstum tökum, fór í röntgenmyndatöku og leyfði lækni að skoða eins og ekkert væri. Hann hafði mestar áhyggjurnar af því að það ætti að ræna af honum hægri sokknum hans! Læknirinn var ekki frá því að lítil sprunga hefði komið á ristina og hann því sendur heim í teygjusokk.

19. desember varð hann svo þriggja ára og við skiljum bara ekkert í því hvað þetta hefur liðið hratt!

 

Hér eru nokkrar myndir, njótið vel!

 

 

   

 

Í byrjun desember voru gerðar nokkrar tilraunir til þess að taka mynd af bræðrunum sem hugsanlega mætti setja í jólakort (sem eru annars ekki enn

farin úr húsi...). Það gekk ákaflega illa að ná mynd af þeim saman en ég náði nokkrum fínum af þeim í sitt hvoru lagi, meðal þeirra voru þessar tvær!!

 

 

Ástþór Örn spilaði fyrir okkur Við kveikjum einu kerti á á þriðja í aðventu

 

 

 

 

Að morgni 19. desember var afmælismorgunkaffi þó að afmælisbarnið stæði fast á því að hann ætti ekki afmæli

fyrr en í næstu viku! Hans biðu margir fínir pakkar, meðal annars þessi fíni Múmínbolli...eitthvað fyrir æstan

Múmínaðdáanda :o)

 

 

 

Honum leist ansi vel á allt sem kom úr pökkunum en vildi að Ástþór Örn hjálpaði honum að opna...sem stóra

bróður leiddist ekki mikið! Frá afa og ömmu á Akureyri fékk kúturinn bók og náttföt, Ástþór Örn færði honum Múmín-samstæðuspil

og nýja skrímslabók, frá Guðrúnu Láru og fjölskyldu fékk hann fiskaspil sem sló heldur betur í gegn og við foreldrarnir

létum ósk um hákarlabangsa rætast!! Seinna um daginn fékk hann svo voða fínt dýra LEGO frá ömmu og afa í Langa og bíla

frá Hröbbu frænku og Valla.

 

 

 

Arnaldur Kári sérlegur áhugamaður um sjávar- og vatnadýr var eiginlega alveg að missa sig yfir spilinu frá

Maríu, Huga og Baldri Tuma!

 

 

 

Draumur afmælisbarnsins var laxakaka...með auka auga! Honum leist aftur á móti ekkert á alla athyglina þegar

verið var að syngja fyrir hann og vissi bara ekkert hvernig hann átti að vera.

 

 

 

 

Blásið á kertin!

 

 

 

Þriggja ára afmælisstrákur!

 

 

 

 

Að kvöldi afmælis að fylgjast með jóladagatalinu

 

 

 

 

 

Eldsnemma í gærmorgun var ég vakin klukkan tuttugu mínútur í sjö! Ástþór Örn var þá orðinn ægilega stressuð um

að við værum að missa af tunglmyrkvanum!! Það var því ekkert annað að gera en að skella sér í hlý föt og kíkja út.

Við sáum tunglið nú ekki út um gluggann þannig að við fórum út og fylgdumst með.

 

 

 

 

Í morgun skelltum við okkur svo í Húsdýragarðinn.

 

 

 

Ástþór Örn að reyna að slá öskurmet!

 

 

 

 

Og lentur ofan í poka hjá Grýlu

 

 

 

Þeir bræður voru alveg óskaplega spenntir yfir þessum nýja íbúa Vísindatjaldsins!

 

 

 

Við kíktum svo á hann Litning sem er núna í garðinum. Hann er ansi sérstakur því hann er hvort tveggja brún- og

rauðskjóttur.

 

 

 

Arnaldur Kári var mikið að segja kindunum frá kindinni hans í sveitinni henni Míu...þær voru náttúrlega

rosa spenntar að heyra af henni!

 

 

 

Einbeittur að keyra í sveitina

 

 

 

Á meðan var Ástþór Örn að gera tilraunir til þess að bæta eigið öskurmet!

 

 

 

 

 

 

 

Þegar við komum heim úr garðinum fengum við okkur heitt kakó og alls konar!

 

 

 

 

Dreyminn Arnaldur Kári

 

 

 

Ástþór Örn niðursokkinn í Andrésblað sem beið í skónum í glugganum í morgun

 

 

 

 

Eftir hádegi fórum við svo í smá bæjarferð. Byrjuðum niður við Tjörn

 

 

 

 

 

Arnaldur Kári vildi bara sitja á tröppunum á torfunni, fylgjast með strætóum og bæjarlífinu. Við litum þó aðeins upp

á Laugaveg og þá vildi hann hvergi annars staðar vera en helst inni í glugga í Kisunni þar sem ísbirnir veifuðu honum!

 

 

 

 

 

Alsæll með lífið!

 

 

 

Við enduðum svo bæjarferðina við Tjörnina

 

 

 

Ástþór Örn í vetrarsól

 

 

 

 

Við óskum ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og vonum að þið hafið það sem allra best