Nóvembermyndir
Jæja, það er ekki seinna vænna að koma inn nóvembermyndum þegar aðeins eru tveir dagar í 1. desember!
Tíminn hefur flogið áfram og sitt hvað verið brallað. Er ekki best að láta bara myndirnar tala sínu máli.
![]()
![]()
![]()
Í byrjun nóvember var snjór í nokkra daga sem gladdi okkur mjög.
Arnaldur Kári og Sigurður bjuggu til þennan svakalega fína snjókarl!


Arnaldur Kári gefur yfirleitt ansi lítið fyrir einhverjar myndatökur og er
spar á myndabrosin!!

En oft fær maður jú líka ansi fín bros! Hér að leika í dýrunum, sem er
eitt það allra skemmtilegasta finnst honum

Þessi er nú líka voða oft að leika...aðallega þá í Lego! En svona sér maður hann líka oft, að æfa sig á flautuna
eða bara að spila eitthvað "út í loftið".

Svo hefur hann tekið tvö sundnámskeið í haust, lært heilmikið og líka skemmt sér mjög vel

Alveg toppurinn að enda námskeiðin með ís!

![]()
![]()
![]()

Þessi krúsilíus er búinn að vera hinn hressasti og farinn að hlakka til að fá desember...þegar hann á afmæli
og jólasveinarnir koma

Á milli þess sem ég ýtti kröfuhörðum strák í rólu var hægt að ná nokkrum veðurblíðu-frostmyndum!


Ástþór Örn hefur séð um að útbúa umgjörð fyrir aðventukertin í nokkur ár. Núna ákvað hann að hafa þetta allt
svolítið litríkt og ekki hægt að segja annað en að skreytingin í ár lífgi upp á tilveruna!

Ekki bara aðventukransar og þess háttar sem minnir á jólin og allt sem þeim fylgja...þeir bræður niðursokknir
í LEGO bækling þar sem mátti finna fullt fullt af drauma jólagjöfum og afmælisgjöfum og miðað við allt
sem Ástþór Örn langaði voðalega mikið í eru komnar hugmyndir fyrir mörg ár!! Arnaldur Kári var hrifnastur af
feðgum í veiðiferð sem voru svo uppteknir við að landa laxi að þeir sáu ekki að skógarbjörn var kominn í tjaldið þeirra.
![]()
![]()
![]()

Í morgun, fyrsta sunnudagsmorgni í aðventu fórum við á jólatónleika hjá Ástþóri Erni og öðrum svakalega klárum
forskólakrökkum.

Hópurinn sem Ástþór Örn er í spilaði tvö lög og stóð sig frábærlega enda æft vel.

"Hlutinn látum hulinn ganga"

Í lokin komu svo hóparnir saman á svið og spiluðu tvö jólalög sem allir höfðu æft

Annars var þessi fyrsti í aðventu eyrnamerktur skemmtilegum hlutum eins og að koma upp smá jólaskrauti, ljósum á svalirnar,
baka piparkökur og alls konar...ég tók því frí frá lestrinum og Ástþór Örn kláraði alla heimavinnu í gær til að eiga daginn í dag
í frí! Mjög notalegt :)

Ástþór Örn og Arnaldur Kári héldu svo uppi stuðinu!

Það sleppur enginn við að heyra aðeins í þessum dúett sem kíkir inn til okkar!!

Einn af amaryllisunum mínum ákvað á allra síðustu stundu að taka örlítinn þátt í
sunnudagssælu á fyrsta degi aðventunnar!

Þó að það væri svolítið kalt var notalegt veður og vel hægt að klæða af sér
frostið, við skruppum því aðeins út í garð að leika...já og brjóta ís!

Já og taka myndir af fallega frosthjúpuðum laufum

Rólurnar standa svo alltaf fyrir sínu...hann Arnaldur Kári gæti rólað svo tímunum skipti svo framarlega sem einhver
nennti að ýta!

Í einu horni garðsins hefur safnast heilmikið af laufum sem var hægt að
þeyta í allar áttir og með fylgdi mikill hlátur og mikið grín!

Svo ótrúlega gaman!


Næst á dagskrá voru svo piparkökurnar...Arnaldi Kára fannst aukaatriði að baka þær heldur skar út og borðaði
bara beint!

Ástþór Örn setti þá einhverjar reglur í bakstrinum um að það ætti ekki að borða deigið og kom kannski litla bróður
hjá magapínu í staðinn!!

Nóg að gera að fletja út fyrir duglega útskurðarmenn...uppáhald Arnaldar Kára í eldhúsinu er kökukeflið og hann elskar því að fá að taka þátt
í öllum bakstri þar sem það er notað, svo ekki sé talað um hvað honum þykir afraksturinn frábær!

Fullt af fínum kökum sem Ástþór Örn skreytti svo líka að hluta í dag...það var meira að segja skorinn
út lax að beiðni Arnaldar Kára en hann var borðaður áður en ég náði mynd af honum!

Svo var loksins komið að því að kveikja á spádómakertinu og á meðan það fékk að loga fengum við okkur
kakó og með því!

"Við kveikjum einu kerti á..."
![]()
![]()
![]()
Vonum að þið hafið haft það gott og aðventan gani ljúflega í garð hjá öllum. Við lofum að uppfæra síðuna eitthvað fyrr í næsta mánuði en þessum!