Haustfrí og
hrekkjavaka!

Kominn 31. október og því um að gera að koma inn myndum helgarinnar, sem flestar tengjast hrekkjavöku! Haustfrí í skólanum hjá Ástþóri Erni og hann því í löngu helgarfríi. Leikskólinn hjá Arnaldi Kára lokaður á föstudaginn og á morgun ætlar hann að fá að vera í rólegheitum með okkur Ástþóri Erni...ósköp gott fyrir hann líka að fá smá frí til að losa sig við leiðindakvef og bara hafa það gott. Við ætluðum nú að fara í sveitina um helgina en þar sem Arnaldur Kári var slappur og kvefaður á föstudaginn og veðurspáin þar fyrir utan ansi leiðinleg ákváðum við að vera heima.

Krúsídúllubræðurnir!

Ástþór Örn er ansi liðtækur bakari og mjög efnilegur kokkur og um daginn
keypti hann sér nýju Disney matreiðslubókina. Hann er búinn að elda upp úr henni
og baka, allt heppnast mjög vel og ekki hægt að vera með neinar tiktúrur þegar
matur sem maður hefur eldað sjálfur er kominn á borðið!!!
Hann hóf haustfríið á að bjóða okkur Arnaldi Kára upp á skonsur að hætti ömmu andar
sem heppnuðust stórvel.

Fótboltakeppni í fullum gangi

Á föstudaginn dunduðum við Ástþór Örn okkur við að föndra svolítið fyrir hrekkjavöku...gátum þá þakkað
því að ég átti í fórum mínum skraut- og kreppappír í metratali!

Og svo voru það graskerin


Ég klár með mitt!

Og graskerið hans Ástþórs Arnar var vel heppnað. Hann fékk að skera toppinn
sjálfur og lenti nú í smá ógöngum enda getur verið erfitt að halda línum á áætlun!
Restina fékk hann svo aðstoð með enda auðvelt að slasa sig þegar skorið er út...
hann var þeim mun liðtækari þegar kom að því að skafa innan úr.

Sigurður Ágúst tók sér góðan tíma í að skera út graskerið og því náðist ekkert að
taka grínmynd af honum með það tilbúið!

Í ár var kóngulóaþema í veitingum! Hér eru ægilega góðar kókossúkkulaðikökuklessur sem brugðu sér
í köngulóabúning.

Svo fóru alls kyns kynjaverur á stjá :)

En þetta var þó allt ægilega huggulegt. Graskerskallinn sem hangir þarna
var föndraður eftir uppskrift frá sjálfu glæpakvendinu Mörthu Stewart!!!!

Og hér má sjá súkkulaðimús með kónulóarmynstri...já og skeggjuðu konuna og ófreskju sem
létu vel af veitingunum og boðinu öllu saman!



Sigurður með horn á höfði...það var eiginlega smá grín hér á heimilinu.
Þeir bræður fóru á leikritið Með horn á höfði um daginn og skemmtu sér konunglega.
Fóru með afa Ástþóri og ömmu Kötu en við Sigurður höfum aftur á móti
fengið að hlusta á leikritið svona skrilljón sinnum og skemmt okkur yfir því en helst
samsöng þeirra bræðra sem er mjööög fyndinn. En já nema hvað, Arnaldur Kári var ægilega
glaður að sjá einn í gervi Björns í Með horn á hofði á hrekkjavökunni okkar!!
Sjálfur vildi hann ekki fara í neinn búning enda hálf slappur og þar fyrir utan ekkert sérstaklega
mikill búningakarl enn sem komið er alla vega.

Ein enn af heiðursgestum hrekkjavökunnar

Og kónuglærnar skriðu víða!

Hrekkjavökukvöldmatur með ægilega góðri graskers "kasserólu"


Ástþór Örn í rólegheitum í dag að leysa gátur í Þankastrikum

Í dag ætluðum við Ástþór Örn aðeins að virkja hann Arnald Kára með okkur í föndri...hann var nú ekki á því!
Ætlunin var að æfa litla kút aðeins í að klippa og föndra svo eitthvað úr því...
það er nefnilega verið að æfa klipp á leikskólanum og okkar maður ekkert alltaf til í svoleiðis grín!
Við buðum upp á alls konar skemmtilegt...klippa út múmínálfa...barbapabba og fjölskyldu svo dæmi sé nefnt.
Við fengum nú litlar undirtektir og sjálfur sagði hann "ég vil klippa laxa". Þó að laxaáhuginn sé stundum kannski einum
of mikill finnst okkur er aðallega fyndið að áhuginn sé enn svona mikill...af öllum dýrum að vera einmitt svona ægilega hrifinn af
löxum! Við björguðum þessu nú, prentuðum út laxamyndir og klipptum út, teiknuðum laxa og önnur sjávardýr og
Arnaldur Kári fékkst til að æfa sig heil ósköp að klippa út laxa, fiskafóður og svo framvegis :o)

Ástþór Örn einbeittur og átti rosalega bágt með að trúa því að hann
hefði einhvern tímann ekki kunnað að klippa

Á endanum reyndist þessi föndurstund því stórskemmtileg...með hjálp laxanna!