Haustdagar í
byrjun október! ![]()
Kominn október, september þaut hér fram hjá okkur hreinlega. Haustið ver bara vel af stað hjá þeim bræðrum. Við finnum alveg fyrir breytingunum í skólanum hjá Ástþóri,
enda heilmikill munur að hafa verið í bekk með 14 nemendum í fyrra yfir í 23 núna. Allt gengur þó vel og hann ánægður. Er búinn að vera á sundnámskeiði og finnst það skemmtilegt þó að honum finnist nú miklu skemmtilegra í tónlistarskólanum og myndlistinni samt sem áður! Í skólanum er það svo kórinn og skákin, þannig að það er nóg að gera.
Arnaldur Kári er glaður á leikskólanum og er svo kominn í íþróttaskóla á laugardögum, sem gerir gott litlum þrjóskupúka sem vill gera allt á sínum forsendum!! Það munar miklu að góður vinur af leikskólanum er þar líka og þeir styðja vel hver annan þar.

Fiðlu-Hansi æfður af kappi, aldrei að vita nema að við getum kannski leyft ykkur að sjá og heyra eitthvað
af flautuleik á næstunni! Eins og sést dreif Ástþór Örn sig í klippingu um daginn...var ekki vanþörf á.

Þessi lubbi var þó ekki með í för þá en stefnt er að því að hemja aðeins
krullurnar á næstunni!

Drifum okkur í haustgöngutúr í Elliðaárdalinn í gær. Fallegt veður og það var gott að geta skýlt sér fyrir
vindinum inni í skóginum


Klifurkettir



Úff...þessi bleiki "lax" sem hann Arnaldur Kári heldur á er dæmi um það þegar hlutir í fari barna byrja á því að vera
ægilega dúlló en eru þó fljótir að fara yfir strikið og verða að einhverju allt öðru. En í stuttu máli þá hefur laxa- og
fiskaáhugi Arnaldar Kári almennt ekki dvínað neitt!

Til dæmis var mikið horft og reynt að koma auga á spriklandi fiska í ánni...

Ég var meira með hugann við haustlitina!


Reynt að koma auga á fuglana sem við heyrðum syngja svo fallega

Eftir góða göngu settumst við og fengum okkur nesti



Bræður í haustlitum!

Við stefnum svo að því að vera dugleg að uppfæra síðuna í október og þið megið auðvitað láta kveðjunum rigna yfir okkur í Gestabókinni!
![]()
![]()
![]()