September hér og þar!
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
Jæja, þá er haustrútínan farin að rúlla af stað hér hjá okkur. Ástþór Örn og Arnaldur Kári hressir og kátir í skóla og leikskóla.
Ég set hér inn svolítið samansafn af myndum, berjamó í byrjun mánaðarins, göngur í sveitinni og svo af skólastrák.

Náðum að tína svolítið af berjum og sulta, búa til saft og frysta!

Arnaldi Kára fannst voðalega gaman í berjamó...þó hann fáist varla til að smakka berin beint af lynginu!

En hann skemmti sér vel enda krókódílar og sjóræningjar þarna um allt að hans sögn!

Gott að fá "far" heim aftur

Þeir nafnar Ástþór Örn og afi Ástþór fóru í sveppamó og komu heimn með
fulla körfu sem munu bragðbæta sósur og súpur í vetur. Afi Ástþór tók þessa fínu mynd!

Á leið á hestbak um daginn...einu sinni ákváðum við að leyfa Létti
aðeins að sjá almennilega og fléttuðum faxið...Ástþór Örn er ekkert sérlega
hrifinn af þessum hárgreiðsluleikjum aftur á móti!

Allt að verða klárt

Einn hringur í gerðinu áður en lengra er haldið

Komið niður að veiðihúsinu

Og svo riðið upp með ánni

Arnaldi Kára þykir óskaplega gaman að gala á hestana af svölunum í Dal

En fátt er nú eins skemmtilegt en að fá að busla í kerinu!

![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()

Síðustu helgi voru göngur í sveitinni og voru heimtur mjög góðar




Ástþór Örn fékk að fara hluta leiðarinnar á hestbaki og leiddist það nú ekki!

Safnið komið saman. Arnaldur Kári heilsar hér upp á vinkonur úr fjárhúsunum okkar...

...þær Fíónu og Evu frá Dal

Nóg að gera!

Arnaldi Kára þótti þetta allt alveg svakalega spennandi og einna glaðastur varð hann þegar Töggur kom í ljós

Forystuhrúturinn Töggur hafði að sjálfsögðu drifið sig á fjallið en hinir hrútarnir okkar létu nú bara fara vel um
sig á flötunum í sumar aftur á móti!

Ástþór Örn heilsaði upp á nautin (myndina tók afi Ástþór).
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()

Í septemberalbúmi verður nú að vera ein mynd af skólastrák!
Ástþór Örn byrjaði í 2. bekk í haust en er líka byrjaður í tónlistarskóla
og ætlar svo að halda áfram í myndlistarskólanum í vetur.

Búinn að fara í tvo tíma í tónlistarskólanum og líkar vel...gat í það minnsta
ekki beðið eftir að komast heim til að æfa sig á flautuna þegar hann kom heim í gær
og það er bara vonandi að áhuginn aukist bara!
Vonum að þið hafið það öll gott og haustið fari vel af stað hjá ykkur öllum