Af heimsókn í Borgarnes og litlum veiðimanni
Í síðustu viku skelltum við mæðgin okkur í smá menningarreisu í Borgarnes. Sigurður missti af öllu þar sem hann var að veiða. Við litum svo við í sveitinni, hittum þar Toni og ömmustrákana hennar og fengum aðeins að líta niður að á!

Í Borgarnesi byrjuðum við á að fara í Skallagrímsgarðinn, en þar eru Skalla-Grímur og
Böðvar Egilsson sagðir eiga haug. Ástæðan fyrir þessum áhuga er að í sumar hefur Ástþór Örn
verið að lesa með afa Ástþóri og mér krakkaútgáfurnar af Njálu, Eglu og svo er allt að
gerast í Laxdælu núna! Hann hefur haft mjög gaman að sögunum...þó að honum finnist nú
margt ansi skrítið líka! Sjálfri hefur mér þótt afskaplega gaman að rifja upp sögurnar þó að ég sé
fegin að afi hafi tekið Njálu með stráknum, eitthvað er það en þeirri sögu hef ég bara ekki gaman að!









Úr Skallagrímsgarðinum var haldið í Brúðuheima

Þar skemmtu bræðurnir sér mjög vel. Arnaldur Kári hefur nýlega uppgötvað Einar Áskel og varð því óskaplega
glaður þegar hann rakst á hann við þyrlusmíð, pabba og Mjása!

Ástþór Örn (með einhvern nýjan myndasvip!) og Alexander úr Galdrabókinni
sem er í miklu uppáhaldi hjá honum

Ástþór Örn stóð fyrir smá sýningu á krakkaloftinu

Eftir að hafa rölt um Brúðuheima röltum við aðeins í fjörunni og svo yfir á Bjössaróló

Bjössaróló verða allir að líta á ef þeir hafa tíma! Mjög skemmtileg leiktæki þar og allt smíðað eingöngu úr efni sem
hafði verið hent og nýttist ekki lengur.

Boðið á rúntinn




Bjössaróló sló alveg í gegn hjá öllum í þessari ferð!

Með Brákarey í baksýn

Á leiðinni til baka skoðuðum við Brúðuheimana aðeins betur og fengum okkur kaffisopa. Ástþór Örn reyndi svo að
sjá aðeins inn um gluggana á verkstæði Bernds Ogridniks og lét sig dreyma um að fá að sjá betur þar sem þar leyndist!!

Úr Borgarnesi var ferðinni heitið í sveitina. Þar stoppuðum við í eina nótt og fengum að troða okkur í veiði eina vakt!
Píla má ekkert vera að því að líta í myndavélina því hún þarf að fylgjast vel með samloku...

Ekki varð ég nú vör en Ástþór Örn veiddi sinn fyrsta fisk með aðstoð afa Ástþórs, þessi fína bleikja tekin á
Blue Doctor!

Sæll og glaður veiðistrákur slappar af við arineldinn í veiðihúsinu