Sveitin, fjaran og hólmurinn

 

 

 

Hér koma nokkrar myndir, strangt til tekið ættu þær nú að vera í júlíalbúmi en þær fá að opna ágúst samt sem áður!

Drifum okkur í sveitina og áttum fína daga þar. Náum vonandi að skreppa aftur til að tína ber fyrir haustið.

En jæja, myndirnar...voilà!

 

 

Leyfi þessari maríuerlu að gefa tóninn!

 

 

 

Ástþór Örn var varla kominn í Miklaholtshreppinn þegar hann var búinn að drífa afa Ástþór í reiðtúr

 

 

 

Glaðir eftir skemmtilega ferð

 

 

 

Og hér eru þeir aftur á ferðinni með Sigurði. Ég hef verið að eiga í hrikalegri sinaskeiðarbólgu undan farið og því

ekki verið dugleg að fara á hestbak, en vonandi að ég nái nú að fara svolítið meira áður en sumarið er úti.

 

 

  

 

Það hefur verið enn eitt þurrkasumarið í sveitinni og þó nokkra daga fór hitinn vel yfir 20°. Við kvörtuðum svo sem ekki þó að þetta væri

kannski heldur mikið af því góða, svona með tilliti til laxagengdar og vatnsleysis.

 

 

 

Arnaldur Kári heilsar upp á Frakk

 

 

 

Skugga kembt með afa

 

 

 

 

Krokket í góða veðrinu

 

 

 

 

 

Fórum í fjöruna við lækinn undir jöklinum! Þar tók þessi einmana álft á móti okkur

 

 

Ástþór Örn við lækinn í fjöruinn

 

 

 

Hvað getur himinninn orðið blár??

 

 

Álftinni leist ekkert alveg á þessi gesti og dreif sig niður í fjöru

 

 

 

Kríurnar eru ansi fáliðaðar á nesinu í sumar því miður

 

 

 

 

 

Gæti þessi mynd ekki til dæmis heitið Dansað við öldurnar?

 

 

 

 

Amma Kata bauð bændum og búarliði út að borða í Stykkishólm sem var mjög gaman og veðrið í hólminum

yndislegt. Hér stillir Ástþór Örn sér upp með Viktori frænda og Klöru vinkonu okkar, sem voru að hjálpa til í

sveitinni og veiðihúsi um tíma í sumar.

 

 

 

Við skruppum svo aftur í hólminn nokkrum dögum seinna!

 

 

 

Byrjuðum á því að skoða Eldfjallasafnið sem allir sem leggja leið sína

í Stykkishólm verða að heimsækja

 

 

 

Röltum um bryggjuna og fórum svo á Vatnasafnið sem er í gamla

bókasafninu þarna uppi á hamrinum

 

 

 

Arnaldur Kári fékk sér sæti í grasinu á leiðinni, slappaði af og söng!

 

 

Á Vatnasafni

 

 

 

 

 

Ástþór Örn lætur fara vel um sig

 

 

Klípu/kremjuknús!!

 

 

Einn og tveir og hlaupaaaaa....

 

 

Ástþór Örn og Breiðarfjörðurinn
 

 

 

Við enduðum þessa menningarferð á hádegismat...mjög notalegt allt saman!

 

 

 

 

Nei sko...þessir komnir á bak enn og aftur!

 

 

Við Arnaldur Kári heimsóttum hana Hnotu á meðan. Hnota er fjögurra vetra og fór síðasta vetur í frumtamningu

hjá henni Söru hálfsystur minni. Það gekk vel og þessi meri hefur alveg hrist af sér Grimmhildarviðurnefnið sem

var að festast á henni!! Svarti liturinn í henni hefur dofnað mikið og ætli hún eigi ekki eftir að verða enn grárri á næstu

árum. Mamma hennar hún Elfa er jörp en pabbi hennar, Kapall frá Hofsstöðum fæddist rauðskjóttur en varð fljótlega

alveg grár.

 

 

 

 

 

 

 

Hann Atilla kom í ár nokkrum dögum á undan ömmu sinni og frændum. Ástþór Örn hefur átt stórleiki að reyna að

tala við hann "ísl-ensku"! Hann er duglegur og kemur oft orðum að því sem hann vill með smá aðstoð en hann

er líka mjög duglegur að láta hugmyndaflugið ráða og bjarga sér bara einhvern veginn!!

 

 

 

 

Keppt um mjólkurlagni afkvæma, þykkt bakvöðva, frjósemi og fleira í Hrútaspilinu!

 

 

 

Við höfum tínt heilmikið af rabarbara í sumar og hefur saft verið vinsælasta afurðin!

 

 

Mér þykir þetta ein sætasta myndin úr sveitinni!

 

 

 

 

Guðrún Lára vinkona okkar var svo góð að senda okkur frábæra síugræju frá Svíþjóð!

Ég hef hingað til vera að sía í gegnum grisju og reynt að útbúa eitthvert upphengisystem sem

hefur virkað mjög svo misjafnlega. Þessi sía er alveg snilldartæki fyrir manneskju eins og mig

sem er frekar viðkvæm fyrir gruggugri saft!! Saftin er ótrúlega góð og kláruðust fyrstu lítrarnir mjög fljótt.

Það var því drifið í að laga annan skammt!

 

 

 

Þessi litli strákur var ansi óheppinn og datt illa á stofuborðið í Dal.

Hann bólgnaði ógurlega fyrst og okkur leist nú ekki á blikuna en

kúturinn var líkur sjálfum sér og bólgan hjaðnaði og marið fór að koma fram.

 

 

Hér að neðan koma svo trjámyndir ársins 2010:

 

 

 

Arnaldur Kári við birkitréð

 

 

     

 

2010                                                                                                            2009

 

 

 

 

       

 

2010                                                                                                    2009

 

     

 

2008                                                                                                        2007

 

    

 

2006                                                                                                    2004

 

 

 

 

 

Berjafréttir og myndir koma svo vonandi bráðlega - kveðjur frá okkur í bili!