Júlímyndir
![]()
![]()
![]()
Við höfum haft það fínt það sem af er sumri. Ástþór Örn dreif sig á nokkur sumarnámskeið og fannst voða gaman.
Litli kúturinn okkar fór svo í sumarfrí í dag en skiptingin á milli deilda gekk vel og hann er glaður á sinni deild, Brekku.
Hér eru nokkrar myndir...aðallega af rólandi bræðrum!!

Ástþór Örn hefur verið duglegur að líta til vina sinna eða fá til sín gesti. Hér var um daginn heilmikið að gera við
stíflugerð í sankassanum!

Eftir alla vinnuna í garðinum komu þau í smá kaffipásu, Ástþór Örn, Valgeir og Vala

Arnaldi Kára leiddist ekki að fá að stilla sér upp með þeim á mynd!!!

Það má ekki heyrast nein tónlist í sjónvarpinu án þess að Arnaldur Kári
sé ekki rokinn fram með orðunum "ég sæki gítarinn" og er svo yfirleitt mættur með
gítar til að tralla með en stundum verða önnur hljóðfæri fyrir valinu.

Kúrt og lesið um ævintýri íbúa í Múmíndal

Í dag drifum við okkur út í góða veðrið. Þeir bræður komast nú stundum ekkert lengra en hingað út í rólur...
alla vega er yfirleitt byrjað þar!




Við fórum svo í göngutúr og þeir bræður komu vð á róló...nema hvað!!!



Reyndum fyrir okkur í smá körfuskotkeppni líka


Litum svo aðeins í dalinn - hvað eru þessir bræður miklar dúllur eiginlega?!

Ástþór Örn hefur komist að því að sílaveiði er sýnd en ekki gefin...alla vega ekki mikil veiðivon þegar reynt er
fyrir sér með strái!!


Á heimleið...með smá viðkomu í rólunum!