Herbergjaskipti!

 

 

Það hefur verið nóg að gera hér á þessum bæ í alls kyns breytingum og lagfæringum. Stærsta verkefnið voru herbergin,  þeir bræður nú komnir saman í stærra herbergið.

Það þurfti því að sparsla, mála, fara í gegnum ógrynni af dóti og ansi margt sem fékk að hverfa. Ég er sérstaklega glöð yfir því að svo kölluð draslskúffa í herbergi Ástþórs Arnar - algjört dótasvarthol hafi verið skorin niður! Svo "neyddumst" við Sigurður til að fara í gegnum þó nokkuð af dóti, taka aðeins til í geymslunni og alls konar sem löngu var kominn tími á. Breytingarnar koma bara vel út finnst okkur og það fer vel um alla.

 

 

 

Herbergið var málað og viðarlitaðar kojur lakkaðar hvítar, þá var hægt að fara að flytja inn!

 

 

 

Allt að gerast!

 

 

 

Þeir bræður voru í smá útilegustemmningu eina nótt áður en við fengum

dýnurnar í kojurnar afhentar

 

 

 

Herbergið málað hvítt utan einn vegg sem Ástþór Örn fékk að velja lit á og

er frá Flugger og heitir Kristalsblár. Fyrir ofan kojurnar hanga svo vatnslitamyndir

af þeim Dufgusi og Frakk sem afi Ástþór málaði handa þeim bræðrum og

fallega hestamyndin sem amma Hilla saumaði út í.

 

 

 

Arnaldur Kári lætur fara vel um sig í nýju rúmi. Rispuna á ennið fékk hann á leikskólanum karlgreyið þegar

hann var að leika sér í kringum trjárunna.

 

 

 

Og einbeittur Ástþór Örn! Við höfðum búist við fjörugum kvöldvökum hér þegar þeir væru komnir saman

í herbergi en enn sem komið er hefur allt verið nokkuð rólegt og þeir sofið vel.

 

 

 

Ágætt gólfpláss í nýja herberginu og Ástþóri Erni fannst tilvalið að dusta rykið

af þessu tjaldi sem hefur ansi sjaldan fengið að standa hér því það tók allt plássið í holinu upp sett!!

 

 

 

Þeir hafa svo skemmt sér ansi vel í tjaldinu og Arnaldur Kári vill meina að það sé hoppikastali!!

 

 

 

 

Skrifborðið er upp við gluggann en hægt að snúa því þannig að tveir geti setið þar og teiknað

 

 

 

 

Sjóræningjarnir sem skreyttu gamla herbergið fengu að flytjast yfir

á nýjar slóðir. Þarna má líka sjá fallega gíraffann sem hún Eva færði okkur og er úr

smiðju pabba hennar, myndlistarmannsins Derek Mundell. Gíraffinn er ekki aðeins til að gleðja augun því hann

 hjálpar okkur að fylgjast með því hvað þeir bræður stækka fljótt og okkur hinum hvort við séum nokkuð að skreppa saman! 

 

 

 

Setti bókahillu inn í eina einingu í fataskápnum og kom þar fyrir bókunum

og nú eru spilin kominn á einn stað þar fyrir ofan...hefur sjaldan verið

spilað meira en eftir að þau komust á einn stað!

 

 

 

Ætlaði að ná sætri mynd af þeim bræðrum en fíflagangurinn varð ofan á!!!

 

 

 

 

 

 

 

Úff á þessu stigi málsins langaði mann bara að loka þessu herbergi og opna ekkert aftur...

 

 

   

 

En eftir sparsl, málerí og fleira hafðist þetta á endanum!