17. júní og reiðnámskeið
Ástþór Örn dreif sig á reiðnámskeið núna í júní. Þar skemmti hann sér konunglega og svo skemmtilega vildi til að bekkjarsystir hans var í sama hóp og hann.
Námskeiðið kláraðist á föstudaginn og á morgun ætlar hann svo að skella sér á námskeið hjá HK af ýmsu tagi! Það verður því nóg að gera hjá honum
þar til þeir Sigurður og Arnaldru Kári fara í sumarfrí í júlí. Hér eru myndir af sýningu sem þau héldu í reiðskólanum en líka nokkrar frá 17. júní!

Ástþór Örn í vestinu sem hann pantaði hjá prjónakonunni á heimilinu um daginn! Ægilega mjúkt og fer þessum sæta strák vel.

Við Ástþór Örn megum til með að pota hér inn smá blómafréttum! Við erum að rækta melónublóm og þegar
kvenblómin fóru að sýna sig höfum við reynt að leika býflugur og borið frjókorn á milli karlkyns- og kvenkynsblóma!
Við eigum nú ekki von á mikilli uppskeru!!

Melónublómin ótrúlega falleg

Á 17. júní skruppum við út að labba og byrjuðum á sjálfum "gubburóló"


Ástþór Örn í rólunni sem rólóinn er kenndur við

Eftir róló gengum við dalinn heim og ætluðum raunar að fara eitthvað lengra í tilefni dagsins en Arnaldur Kári
tók upp á því að reyna reglulega að henda sér í gangstéttina og þykjast voðalega slasaður til að láta halda á sér.
Ég var svo leiðinleg að láta þetta bara ekkert gabba mig og þegar þetta hafði verið reynt ansi oft stakk Ástþór Örn
bara upp á kósíprógrammi heima í stað þess að fara í mannmergð og endalausar raðir...ég var ekki lengi að samþykkja það!
Sigurður hélt upp á daginn á Hellisheiði...þar var víst rosa stuð!

Ástþór Örn freistaði þess að síli biti á trjágrein




Ástþór Örn í reiðskólanum

Krakkarnir héldu sýningu og byrjað var á að sýna jafnvægisæfingar

Svo komu þessir flottu knapar ríðandi inn á skeiðvöllinn og sýndu hvað þau kunna!

Ástþór Örn var á þessu námskeiði á rauðskjóttu merinni Fríðu

Arnaldur Kári var ekkert allt of upptekin af sýningunni og slakaði bara á í brekkunni!!!!




Útksrift með viðurkenningu og klappi!

Stoltur strákur búinn að ljúka Framhaldi I