Veiðiferð
Þegar við skruppum í sveitina um daginn fórum við niður í Sökkur og renndum fyrir sillungi. Við sáum nú fisk en ekki vildi hann taka!
Þetta voru nú samt skemmtilegar stundir við ána og maður hafði nóg að gera við að fylgjast með fuglalífinu og passa upp á að bræður rennbleyttu sig ekki í pollavaði á sílaveiðum.


Sáum til þessa hafarnar...sem ég rétt náði á mynd!


Slíið næstum jafn spennandi og sílin sem skutust um í öllum pollum!

Sandlóa stillir sér upp

Lambagrasið farið að spetta

Og krían mætt eins og
lög gera ráð fyrir!

Tjaldinum leist ekkert meira en svo á það að við værum að þvælast þarna

Arnaldur Kári skemmti sér mjög vel niður við ána



Ástþór Örn spreytir sig á fluguveiðinni með smá aðstoð!

Afi Ástþór reynir við bleikju sem Sigurður og Ástþór Örn sáu glitta í...hún vildi aftur á móti ekkert með okkur hafa!

Svo er nú líka gott að slappa aðeins af á bakkanum

Straumendur á fljúgandi siglingu!

Fisklausir en glaðir í veiðiferð!
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()