Í sveitinni
![]()
Um að gera að koma hér inn maímyndum áður en júní gengur í garð! Þó að þetta séu nú bara sveitamyndir er ýmislegt að gerast hér heima fyrir líka.
Fyrst má nefna að Arnaldur Kári var að fara ásamt vinum/vinkonum sínum upp á aðra deild í leikskólanum. Það hefur gengið vel. Hann verður á leikskólanum fram að sumarfríi sem byrjar eftir fyrstu vikuna í júlí. Ég verð að vinna að ritgerð í sumar og þarf að halda vel á spöðunum. Ástþór Örn er orðinn spenntur að komast í sumarfrí og hlakkar mikið til að fara aftur í reiðskólann og svo eru önnur skemmtileg námskeið á dagskrá í kjölfarið.

Hér er hún Fura, kindin mín með hrútinn sinn. Hún bar nú tveimur en
því miður lifði annar ekki. Það er ekki einleikið hvað ég er óheppin
í mínum fjárbúskap og því kannski ágætt að ég eigi ekki margar.
Nokkrar hef ég misst úr júgurbólgu, lömb ekki skilað sér af fjalli.
Í fyrra var keyrt á annað lamb hennar Furu og ættingi hennar, hrútur sem seldur
var á fæti misstu nýjir eigendur í sjóinn á leið út í einhverja eyju á Breiðarfirði.
Sum sé er gæfan ekki alveg með mér í þessu. Ég hef því vellt því fyrir mér
hvort ég ætti að skipta um stefnu í nafngiftum, en ég hef nefnt kindurnar mínar
Eik, nýja Eik, Sedra og Fura. Mér finnst svo gott að halda ættum í svipuðum
nafnadúr til að auðveldara sé að hafa yfirsýn yfir skyldleika!!

Og hér er hún Mía Lísudóttir sem Arnaldur Kári er mjög stoltur eigandi af. Hún er ákaflega spök og skemmtileg kind.
Hún var að bera í fyrsta skiptið og eignaðist gimbur sem Arnaldur Kári vildi að fengi að heita Mína...ég var mjög
ánægð með það að hann væri að styðja nafnafyrirkomulagið mitt!

Notalegt að liggja í sólinni

Æ það er alltaf svo freistandi að grípa þessar dúllur og fá aðeins að knúsa...ég hef alla vega ekki vaxið upp úr því
og Ástþór Örn segir mömmurnar góðar vinkonur sínar sem séu alveg rólegar yfir því að hann fái aðeins að halda
á börnunum þeirra!!

Kindurnar og lömbin voru svo rekin niður á flatir, svona til að hita upp fyrir dvöl á fjalli

Hrútarnir voru glaðir með að komast í sumarfrí og drifu sig lengst út á flatir; Blíðfinnur, Töggur og Baugur

Sumarið komið í sveitina. Með fjölgun trjáa í sveitinni hefur smáfuglum fjölgað mjög en líka býflugum, sem er bara
skemmtilegt enda gera þær engum mein. Aftur á móti eru geitungarnir svolítið margir þarna líka og það þykir okkur
mun leiðinlegra.

Það hefur verið nóg að gera í nýplöntun og líka tilfærslum




Það mætti halda að þessir bræður stæðu í sitt hvoru veðrabeltinu! Arnaldur Kári vill helst ekki fara út án þess að vera
vel klæddur...enda þarf þess nú yfirleitt. Það getur því valdið miklum ruglingi ef allt í einu er bara engin ástæða
að fara í flíspeysuna og jakka. Hann var til að mynda alls ekkert á því hér fyrr í vor/sumar að tími kuldaskóna væri liðinn
í bili!!!

"...það er steinn í skónum mínum"

Þegar hann svo fékkst úr jakkanum bætti hann um betur og fór úr skónum líka

Hófsóleyjarar alveg að springa út

Sóttum þrjá af klárunum um daginn og voru þeir járnaðir

Gaman að komast á hestbak. Við höfum ekki orðið vör við hestasóttina, en grunur liggur þó á að einhver
hluti okkar hrossa hafi jafnvel veikst strax um páska. Sumir vilja meina að hross sem ganga úti verði ekki eins veik, en aðrir telja
það ekki rétt. Maður veit því lítið um þetta í raun en við reynum að fylgjast með líðan þeirra og vona að þetta gangi fljótt yfir
hjá öllum.

Ég og pabbi á leið heim

Ástþór Örn dreif sig svo á bak, aðeins farinn að hita upp fyrir reiðnámskeiðið sem hefst eftir viku

Sigurður Ágúst dreif Frakk í smá ferð

Notalegt að lesa bók með afa Ástþóri

Og svo er líka voða notalegt að leggja sig aðeins bara við eldhúsborðið!!

Það er endalaust hægt að missa sig í myndatökum af fallegum sumarkvöldum í sveitinni!
![]()
![]()
![]()
Og hér eru svo myndir frá liðinni helgi. Við komum á föstudagskvöldið í sveitina eftir að hafa verið á vel heppnaðri vorhátíð sem krakkarnir í Hjallaskóla buðu krökkunum í Digranesskóla að koma á.
Þar var margt skemmtilegt í boði; Ástþór Örn söng nokkur lög ásamt kórfélögum sínum og Arnaldur Kári hélt uppi stuði á meðan skólahljómsveit Kópavogs spilaði!

Ástþór Örn fór með afa sínum í smá göngutúr þegar við komum í sveitina
og hann kom færandi hendi með nokkra væna rabarbara sem voru svo
að hluta notaðir ásamt eplum í köku daginn eftir!

Arnaldi Kára finnst einna skemmtilegast að fá að sitja í í traktornum

Á laugardaginn var rifsberja- og stikilsberjarunnum komið niður
og stefnt að því að koma niður enn fleiri á næstunni!


Eftir útiveruna áttu þessir bræður smá orku eftir sem var nýtt í svolítinn fíflagang yfir Eurovision


Í gær var sama veðurblíðan og það var því hægt að vinna heilmikið úti og sinna hrossunum.
Arnaldur Kári heilsar hér upp á Dufgus

Og afi kominn á bak

Lagt upp í reiðtúr, Ástþór Örn á Létti sem er á 14. vetri og afi Ástþóri
á Dufgusi sem er nýorðinn 6 vetra.

Og hér hefur Sigurður bæst við á Frakk

Á meðan þeir fóru í útreiðartúr kíktum við Arnaldur Kári á yngstu lömbin í Dal, þar sem sauðburði lauk formlega
á laugardaginn. Þessum bar hún Kikkólína á föstudaginn

Selma var síðust í röðinni og bar á laugardag tveimur gimbrum

Við Arnaldur Kári vorum svo að dunda úti í hinu og þessu...fundum okkur meðal annars verkefni sem krafðist þess
að við tækjum einn rúnt á traktornum! Arnaldur Kári var svo alveg yfir sig spenntur þegar hann sá hrossin nálgast,
aðallega var spenningurinn mikill yfir því að Ástþór Örn væri aftur að koma heim...eins og hann hefði verið
lengi í burtu!!

Þessi litli knapi stóð sig vel og fannst verst að kærastan gæti ekki séð hann!!!!

Arnaldur Kári fær aðeins að máta Dufgus

Glaður hestastrákur sem getur ekki beðið eftir að komast í reiðskólann

Og aðeins meira af hrossunum okkar. Þessir frændur, Neisti og Merkur eru í mikilli keppni um það hver eigi
nú að ráða í hópnum.


Mér leist ekki á það þegar "litla" barnið hann Nökkvi frændi annars og hálbróðir hins var þarna lentur á milli!!!
En hann sá nú fljótt að hann hafði eitthvað lent á vitlausum stað og hélt sig fjær látunum.

Röltum með ömmu um heimaholtið og gátum ekki annað en óskað þess að það færi að rigna, þar sem
allt er orðið ansi þurrt og skrælnað.

Arnaldur Kári setur upp myndasvipinn

Og þegar ég spurði hvort að ég fengi ekki eitt bros...var ekki að spyrja að því


Píla er í miklu uppáhaldi hjá Arnaldi Kára enda er hún voða ljúf og góð elsku kerlingin


Hófsóleyjarnar í miklum blóma og vonandi líður ekki allt of langt þar til hægt verður að fara að tína blóðbergið
og þurrka

Notalegt að leggjast aðeins í grasið og slappa af...svona áður en þeir sem puða í að koma niður plöntum upp við hús sjá mann!