Dans, söngur og sumar
![]()
Við búin að hafa það aldeilis gott undan farna sólardaga. Verið heilmikið úti við, Ástþór Örn hér og þar annað hvort í heimsókn hjá einhverjum eða með vini/vinkonur í heimsókn hjá sér. Ég var nú reyndar að stússa hér inni, var aðeins að breyta í stofunni sem kallaði á sparsl og púss og því ekkert annað í stöðunni en að mála yfir líka.Við mæðgin skelltum okkur svo í leikhús í gær og sáum Fíusól ærslast og skemmtum okkur mjög vel. Hér koma myndir af danssýningu á leikskólanum hjá Arnaldi Kára, kórahátíð sem Ástþór Örn tók þátt í og svo nokkrar sumarmyndir í lokin!

Arnaldur Kári var mjög brattur á danssýningunni og lét það ekkert á sig fá þó að við foreldrarnir værum að horfa á hann




Þessum stóra strák þykir skemmtilegast að kubba, teikna og láta lesa fyrir sig...voða mikið sömu bækurnar reyndar og
þar er Lubbi finnur málbein svo vinsæl að hana á ekki bara a lesa fyrir svefninn á kvöldin heldur vill hann helst hafa
bókina í rúminu líka!
![]()

Ástþór Örn sumarlegur á leið á kórahátíð á Uppstigningardegi

Kórinn úr Digranesskóla mætt á kórahátið til heiðurs Sigfúsi Halldórssyni.

Beðið eftir að röðin komi að þeim!

Og svo var loksins komið að þessum krúsidúllum á öllum aldri úr Digranesskóla. Þau sungu tvö lög og stóðu sig mjög vel!


Í lokin tóku allir kórarnir saman nokkur lög

![]()

Ástþór Örn að æfa sig á hjólabrettinu

Komið við á róló


Sumarstrákur...

...og sumarbræður!
![]()