Apríldagar
Gleðilegt sumar! Það er vonandi að maður fari að verða aðeins léttstígari svona þegar er komið sumar alla vega samkvæmt dagatalinu!!
Hér eru nokkrar aprílmyndir, þær nýjustu frá í dag. Hafið það gott öll!

Um síðustu helgi var skipulögð ferð fyrstu bekkjanna í Digranesskóla í Tilraunalandið í Norræna húsinu -
mjög gaman!


Arnaldi Kára fannst gaman að fá að prófa hitt og þetta en
skemmtilegast var þó að hitta krakkana!

Brugðið á leik í spéspeglinum




Úr Norræna húsinu fórum við á opið hús í Myndlistarskólanum.
Hér er Ástþór Örn búinn að stilla sér upp við framlag hans
og hópfélaga hans þar sem þemað voru verk Svavars Guðnasonar

Arnaldur Kári að perla, en það er það allra skemmtilegasta þessa dagana!
Datt á leikskólanum og fékk væna kúlu á ennið sem breytti litum og fór svo loks að dofna

Riddari á þeysireið!

Í gær var Gleðihátíð á leikskólanum hjá Arnaldi Kára, en þá fékk leikskólinn samninginn um Grænfánann
endurnýjaðan.

Boðið var upp á skógarberjadrykk og ávexti
Okkur finnst voðalega stutt síðan Ástþór Örn fagnaði Grænfána á leikskólanum fyrir tveimur árum:


Ég má svo til með að sýna hér smá handavinnu!! Prjónaði þetta vesti á Arnald Kára.
Þetta er sama garn og í peysunni sem ég prjónaði á mig (sem ég var að baksa við í
páskafríinu!). Þessi merinoull er svo mjúk að maður gæti haldið að þetta væri
kasmírull.

Á vestið setti ég þessar bílatölur úr tré sem hún móðir mín keypti í lítilli handavinnubúð í
Lyngby vorið 2003! Jæja, mamma - þær eru loksins komnar í notkun!!

Ég rann svolítið blint í sjóinn þegar ég prjónaði vestið. Vildi prjóna búkinn í hring,
í stað tveggja stykkja og sauma saman. En í mínum kokkabókum er eiginlega
aldrei prjónað í hring þannig að ég heimfærði þetta einhvern veginn og það gekk
bara ágætlega, svona þegar engar eru ermarnar og svo frv!!
Svo var nú Arnaldur Kári lítið fyrir að láta mæla sig eða láta mæla
stykkið við sig á meðan ég var að prjóna vestið. En það er bara ágætt,
þó að næst hafi ég það örlítið stærra á hann. Ástþór Örn er búinn að panta vesti hjá mér
þannig að vonandi fáið þið að sjá mynd af honum fljótlega í nýju vesti líka!!

Leikið og lesið

Hér innan dyra hjá okkur er komið vor! Alls kyns kryddjurtir og blóm farin að gleðja okkur.
Hér er melónublómið okkar Ástþórs Arnar. Við gróðursetjum
vatnsmelónusteina og fáum upp voða falleg blóm sem ilma afskaplega vel!

Hluti af sólblómaútgerðinni

Og tómatar komnir vel af stað

Fallegir krókusar hjálpa til við að koma sumarprógrammi af stað...
svona alla vega í huganum!

Í morgun fórum við á barnamenningarhátíð og skoðuðum sýningu Myndlistarskólans í Reykjavík í Listasafninu
Hér er Ástþór Örn í Hallargarðinum

Arnaldur Kári og Sigurður með Listasafnið og Kvennaskólann í baksýn

Þó að það væri loftkalt var notalegt að vera úti þegar sólin skein


Sápukúlur nauðsynlegur liður í að fagna sumardeginum fyrsta

Einbeittur sandkassastrákur


Fórum svo í göngutúr og komum við á róló


Þegar við komum inn var notalegt að koma smá hita í kroppinn og Ástþór Örn las fyrir skólann...áður en hann
var rokinn út aftur í heimsókn til vinar síns. Allt fer þetta í hringi, bókin sem hann er að lesa núna er engin önnur en
Litla gula hænan!