Páskafrí  í sveitinni

 

 

Eins og undan farin ár vorum við í sveitinni yfir páskana. Við náðum nú aðeins að líta út fyrir hússins dyr þó að það hafi blásið hressilega ansi stóran hluta helgarinnar.

En við höfðum það ansi gott og af fjölda mynda sem teknar voru mætti halda að við hefðum verið í margar vikur í páskafríi! Hér er smá brot, kannski af því besta úr albúminu.

 

 

Komum í sveitina á skírdag. Skyrtunnan hvíta enn skyrhvít og eitthvað er enn í vorið í sveitinni

 

 

Ástþór Örn á leið í fjárhúsið...nema hvað!

 

 

 

Nú styttist í sauðburð og við öll orðin ansi spennt!

 

 

Ástþór Örn og Skúmur

 

 

Arnaldur Kári tók gjafirnar í fjárhúsunum mjög alvarlega og fór

ansi margar ferðirnar með smá tuggu og færði aðallega hrútunum!

 

 

 

Ástþór Örn í spröngunni sívinsælu

 

 

Arnaldur gaf líka örlítið brauð við mikinn fögnuð

 

 

Á föstudaginn langa var veður ansi vont. Þarna var skyggni bara nokkuð gott

miðað við það sem á eftir kom. Það var kannski ágætt að veðrið var leiðinlegt

því ég hélt mig þá inni enda afskaplega kvefuð, sýna Sigurði samhug kannski en hann

lá í kvefpest í lok mars.

 

 

 

Í vondu veðri er notalegt að sitja inni og spila...

 

 

alla vega ekkert gaman að vera úti í þessu!

 

 

Ástþór Örn að teikna Múmínálfamyndir og hér er það Morrinn sem er viðfangsefnið og gott að fá hann svona

til að "stilla" sér upp á bolla! Hér er annars hafin önnur Múmínbylgjan í fjölskyldunni. Ástþór Örn horfði endalaust

á Múmínálfana og var einmitt alltaf ægilega spenntur þegar Morrinn birtist. Arnaldur Kári er svo að koma mjög

sterkur inn í Múmínlandið eftir að hafa verið frekar óspenntur fyrir því að horfa á myndir og ef að eitthvað mátti

horfa á var það Hrúturinn Hreinn sem horft var á! Það eru raunar alveg snilldarþættir það er ekki það en það

er ekki frá því að við hin sem eldri erum séum bara glöð að heyra aftur ósvífnina í Míu litlu og viskuna frá Snúði!!

Og eins og stóri bróðir er Arnaldur Kári ægilega spenntur fyrir Morranum og afi Ástþór getur því farið að

rifja upp leikræn tilþrif og leikið Morrann eitthvað fram eftir þessu ári býst ég við!!!!

 

 

Ég náði að komast svolítið áfram í peysuprjóni. Er að prjóna voða sæta peysu úr yndislegu merinoullargarni

sem er eins og kasmír að koma við. Ég var raunar komin lengra um daginn en áttaði mig þá á því að í fljótfærni hafði ég hlaupið

yfir mikilvægt atriði í uppskriftinni.Ég var því með ermar á mig en bakstykki á svona 10 ára barn!!

Ég get því ekki beðið eftir að klára þessa peysu og prjóna þá kannski einlita úr þessu sama garni.

 

 

Á laugardagsmorgni var allt bara orðið eins og um vetur í Múmíndal...kannski verið horft of oft á

hana daginn á undan!

 

 

 

Morrinn lét sem betur fer ekki sjá sig en þessi Dalssnáði var afskaplega glaður yfir snjónum!

 

 

Ástþórs- og einhver Píluspor

 

 

Og um nóttina höfðu mýslur verið á ferð í kringum fjárhúsin!

 

 

Vetrarlegt í aprílbyrjun

 

 

 

 

 

Uppstylling í snjónum :o)

 

 

Komum okkur í gott skjól í grenilundinum

 

 

Seinna um daginn fórum við í bíltúr og fórum meðal annars upp að Baulárvallarvatni. Þessi stapi er í

sérstöku uppáhaldi hjá mér, þó ég muni nú ekki hvað hann heiti. Á sumrin er hann í ansi ævintýralegum

litum og í þeim búningi langar mig helst að eiga hann í ramma uppi á vegg!

 

 

 

 

Heimsóttum alla hrossahópana og hér er yngsta deildin heimsótt.

Arnaldur Kári og Sigurður heilsa hér upp á Neista, sem er á fjórða vetri

 

 

Og hér er hann litli Merkur okkar sem er á þriðja vetri.

 

 

Og svo fórum við til kláranna okkar og hér er Frakkur að þiggja smá brauð frá þeim feðgum.

Því næst heimsóttum við merarnar og litlu börnin!

 

 

Þessa páska var kubbað margt, mikið og skemmtilegt

 

 

 

Oftast í sátt...

 

 

    

 

En svo þótti Arnaldi Kára stóri bróðir stundum roooosalega ósanngjarn og leiðinlegur kubbafélagi!!!

 

 

 

Kominn út í snjóinn

 

 

 

 

 

Á fjárhúströppunum

 

 

Við hjálpuðum Gísla við að moka svolítið út og var Arnaldur Kári

ekki langt undan þegar þurfti að tæma skófluna!

 

 

 

 

Þegar leið á laugardaginn bráðnaði nú heilmikið af snjónum en nóg var þó eftir til að leika í

 

 

Píla lætur sig dreyma um sumartíð og von um bita í veiðihúsinu...

 

 

Þessi sumargjöf til Ástþórs Arnar frá afa og ömmu í Langa hefur verið notuð mikið og stóð Arnaldur Kári

fastar á því en fótunum að hann ætti þennan traktor en Ástþór Örn mátti fá lánaðan aðeins!

 

 

Það fór þó ekki fram hjá neinum að þetta var traktorastjórinn!!

 

 

Trýna var ekkert hrifin af því að leika í snjónum

 

 

Örlítið leikið í snjónum áður en farið var inn. Arnaldur Kári eplakinn og litli snjókarlinn

 

 

Og hér er ég að hvíla mig eftir að hafa ýtt traktor um gerðið í dágóða stund!!

 

 

 

Á páskadagsmorgun, Ástþór Örn byrjaður í ratleiknum. Höfundar vísbendinganna sáu að við þurfum að þyngja þetta

svolítið því þessi klári sjö ára strákur sá við öllum þrautum á mettíma!

 

 

 

 

Eggin frá afa og ömmu fundin, en þau misstu af öllu enda stungin af til heitu landanna.

 

 

Arnaldur Kári var spenntastur fyrir þessum litla unga

 

 

 

Ástþór Örn með stóra eggið sitt

 

 

Ég hef þann sið á að gefa þeim bræðrum svona pappaegg sem

smá mótvægi við súkkulaðið. Þau vekja líka mikla lukku enda

alltaf eitthvað skemmtilegt óætt dót inni í þeim!

 

 

Ég er voða spennt fyrir súkkulaði um páska en nú er það orðin hefð

hjá okkur að baka yndislegt grískt páskabrauð

 

 

Langa fléttan orðin að hring og á meðan deigið hefaði sig í annað skiptið skruppum við aðeins út

 

 

Fórum niður að á, þar sem var ansi vetrarlegt og Arnaldur Kári voða spældur að sjá ekki "lask"

 

 

 

 

 

 

 

Komin inn aftur og brauðið og fleira góðgæti á næsta leyti!

 

 

 

Rosa gaman þetta hádegið!! Ég man nú ekki hverju var næstum og alveg farið að grenja yfir en myndin

er óborganleg og mig grunar að ég eigi eftir að draga hana fram í nokkrum stórafmælum framtíðarinnar!!!

 

 

 

En fýlan rann af öllum þegar brauðið og allt hitt var borið á borð!

 

 

 

Og hér eru þessir grátkallar eins og þeir eru nú oftast, kátir!

 

 

Ástþór Örn tók þessa fínu mynd af okkur mæðginum

 

   

 

Arnaldur Kári á ýmsa vegu. Það er enn hægt að fela svolítið myndatökur og ná skemmtilegum myndum af þessum litla kút okkar sem er samt orðinn svo stór finnst okkur!

 

   

 

Hvað er nú eiginlega hægt að vera sætur?? Klipping á næsta leyti hjá þessum hárprúðu lubbabræðrum en æ þessir lokkar eru nú svo dúlló líka.

 

  

 

Þessi strákur er nú líka alveg ómótstæðilegur og það var nú hægt að ná ansi skemmtilegum myndasyrpum af honum hér í "den". Núna þykir

honum aftur móti mun skemmtilegra að hressa svolítið upp á myndatökurnar með smá fíflagangi!!

 

 

 

Arnaldur Kári á Pílubaki að gefa henni stórt knús!

 

 

 

Hér biðu blómstrandi kirsuberjagreinar eftir okkur þegar heim var komið...yndislegt!