Vorilmur í mars!

 

 

Og allt í einu varð miður mars og næstum lok mars. Við höfum nú verið frekar ódugleg að taka myndir, aðallega því fólk með magakveisu er ekki gott myndefni. Ástþór Örn tók fyrstur kveisu, svo ég og þá Arnaldur Kári. Held að 90% af leikskóla og skóla hafi fengið að kenna á þessu sama.

En nóg um það!! Allt hefur annars verið gott að frétta. Ástþór Örn er einu sinni í viku í myndlistaskólanum og núna eftir áramót hefur Matti frændi okkar verið með honum þar,

sem er mjög skemmtilegt. Einu sinni í viku er svo skákæfing í skólanum og líkar Ástþóri Erni vel þar, svona misvel þó - fer eftir því hversu erfiða andstæðinga hann hefur teflt við!

Arnaldur Kári er alltaf kátur að fara á leikskólann og líður vel þar. Mikill munur að bleyjur séu úr sögunni þó að manni finnist "litla barnið" á heimilinu allt í einu orðið voða stórt.

Vonum að þið hafið það öll gott.

 

 

 

Þó að nokkur aldursmunur sé á þessum bræðrum eru þeir mikill félagsskapur hvor fyrir annan...

þó að stundum sé nú líka rifist eins og gengur!

 

 

 

Stjarni skemmtir Arnaldi Kára ekki síður en Ástþóri Erni þegar hann var yngri

 

 

 

Ástþór Örn í Nintendo"ljóma"

 

 

 

Af þessum myndum mætti ráða að Ástþór Örn fengi að hanga í Nintendo-tölvunni sinni ÖLLUM stundum

en ég get fullvissað ykkur um að svo er ekki!

 

 

 

Ætli það sé hægt að vera sætari snemma á sunnudagsmorgni?!

 

 

 

Ástþór Örn er mjög duglegur að lesa og er alltaf að verða duglegri og duglegri að lesa sér til skemmtunar.

Lesa á fyrir skólann daglega og fyrir mánudaginn var þar Kanínur og kátir krakkar sem var rúllað upp.

Sigurður er með voða góða þjónustu, bara eins og sá sem flettir fyrir píanóleikara!

 

 

Um hádegisbil þótti okkur ekki seinna vænna en að hnoða í kanil- og kardimommusnúða.

Eitthvað var Arnaldur Kári þó að kvarta yfir ríkjandi aðferðum okkar mæðgina við þetta og vildi

hafa allt annan hátt á sjálfur. Honum þótti alveg glatað að þurfa að fletja út og rúlla eitthvað eftir einhverjum

ákveðnum reglum!

 

 

 

Rúllað og rúllað!

 

 

 

Og á endanum var hann ægilega ánægður með að hafa búið til banana!!

 

 

 

Ástþór Örn bjó til nokkrar voðalega góðar kanilbollur auk snúða

 

 

 

Sjá í Kardimommubæ við búum allir vel...er það ekki einhvern veginn svoleiðis? Ég ætti kannski að vita það

þar sem Kardimommubær fær að hljóma hér mjöööög oft enda Arnaldur Kári mikill aðdáandi!

Alla vega var hér kardimommu- og kanililmur í loftinu í dag og vel fullir magar :o)

 

 

 

 

Ástþór Örn loksins á leið heim með páskagrein, enda fundist kominn tími til að fara að undirbúa páska

 

 

 

Hér í garðinum er líka orðin svolítil vorstemmning...vonum að þessir vorboðar verði ekki slegnir allt of mikið

út af laginu á næstu vikum

 

 

 

Og byrjað að skreyta

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

Svolítið úr fókus en ekki hægt að sleppa því að birta þessa dúllumynd :o)

Næsta skrefið er svo að fara að bræða snjóinn af forsíðunni og koma þessu öllu í vorbúning hjá okkur...

hvort að veðurguðir taki svo þátt er allt annað mál!